Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Samúel Karl Ólason skrifar 28. október 2026 12:12 Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Alexendar Stubb Finnlandsforseti. EPA/OLE BERG-RUSTEN Þegar þeir Alexander Stubb, forseti Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hringdu í Vladimír Pútín Rússlandsforseta á dögunum, stóð til að símtalið myndi taka um tuttugu mínútur. Þess í stað stóð það yfir í rúmar níutíu mínútur og kom mögulegt vopnahlé í Úkraínu varla til umræðu.
Pútín varði mestum hluta símtalsins þess í stað í að lesa Stubb og Støre pistilinn um sögu slavneska fólksins í gegnum aldirnar og hinar svokölluðu „grunnástæður“ innrásar Rússa í Úkraínu. Stubb ræddi símtalið við blaðamenn í Finnlandi í gær og líkti því við hálfmaraþon, þar sem það hefði tekið sambærilega langan tíma. Hann sagði, samkvæmt YLE, að helsta markmið símtalsins hefði verið að ræða möguleika á friði við Pútín og koma áleiðis skilaboðum frá Úkraínumönnum. Blaðamenn Financial Times hafa eftir heimildarmönnum sínum að símtalið hafi nánast ekkert snúist um mögulegt vopnahlé í Úkraínu. Þá segir í frétt miðilsins að Stubb og Støre hafi ákveðið að trufla ekki eldræðu Pútíns um sögu Rússlands til að sjá hversu alvara honum væri um viðræður við Evrópuríki. Pútín hefur í gegnum árin orðið tíðrætt um sögu Rússlands og slavneska fólksins og hefur notað þá sögu til að reyna að réttlæta innrásina í Úkraínu. Í síðustu viku hélt forsetinn því fram að nýleg genarannsókn sannaði að Rússar og Úkraínumenn væru sama þjóðin. Þá er þetta ekki í fyrsta sinn sem Pútín heldur langa ræðu yfir öðrum þjóðarleiðtogum um söguna en það gerði hann á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Alaska í fyrra. Pútín talaði þá lengi um leiðtoga slavneska fólksins á miðöldum og hafa fjölmiðlar vestanhafs haft eftir heimildarmönnum sínum að sá fyrirlestur hafi alls ekki fallið í kramið hjá Trump. FT var þeirra á meðal en miðillinn sagði frá því að Trump hefði á endanum hækkað róminn til að stöðva frásögn Pútíns af þeim Rúrik frá Garðaríki, Jaróslav hinum vitra og öðrum gömlum slavneskum leiðtogum. Þá hótaði Trump því að fara af fundinum ef Pútín héldi áfram. Margræddar „grunnástæður“ Auk þess að tala um söguna talaði Pútín um „grunnástæður“ innrásarinnar og sakaði Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið um að draga stríðið á langinn. Þá sagði hann að ekki væri hægt að koma á friði án þess að taka tillit til hagsmuna Rússa. Þegar Pútín og aðrir ráðamenn í Rússlandi tala um meintar „grunnástæður“ innrásarinnar í Úkraínu eða um öryggishagsmuni Rússa eru þeir að vísa til kröfu þeirra um að ríkjum Austur-Evrópu verði vísað úr Atlantshafsbandalaginu. Fyrir innrásina í Úkraínu krafðist Pútín þess að Úkraínu yrði meinaður aðgangur að NATO og að bandalagið myndi flytja alla hermenn og búnað úr aðildarríkjum sem gengu til liðs við bandalagið eftir 1997. Þar á meðal eru Pólland og Eystrasaltsríkin, sem hafa varað við því að Rússar vilji auka umsvif sín á svæðinu og draga úr fullveldi þeirra. Sjá einnig: „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Pólland, Ungverjaland og Tékkland gengu til liðs við Atlantshafsbandalagið árið 1999. Árið 2004 gerðu Búlgaría, Rúmenía og Slóvakía það einnig auk Eystrasaltsríkjanna Eistlands, Lettlands og Litáen. Í kjölfarið af því gengu Albanía, Króatía, Svartfjallaland og Norður-Makedónía það einnig. Þessi ríki eru á gömlu yfirráðasvæði Sovétríkjanna. Þá hafa Rússar einnig ítrekað haldið því fram að með því að styðja varnir Úkraínumanna séu bakhjarlar Úkraínu að framlengja stríðið þar og stigmagna það. Rússum hefur um nokkuð skeið vegnað illa á víglínunni í Úkraínu. Sagði Stubb og Støre ekki hafa sagt neitt nýtt Ráðgjafi Pútíns sagði blaðamönnum einnig í gær að Stubb og Støre hefðu rætt möguleikann á því að Pútín fundaði með Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu. Júrí Úsjakóv, umræddur ráðgjafi, sagði að Pútín hefði sagt, eins og hann hefði sagt milljón sinnum áður, að ef Selenskí vildi hitta Pútín ætti hann að koma til Moskvu. Þar yrði öryggi hans tryggt. Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, sagði einnig að Stubb og Støre hefðu ekkert nýtt lagt fram og því væri of snemmt að segja til um hvort þetta símtal myndi einhverjar afleiðingar hafa. Það að þeir hafi hringt í Pútín hefur verið gagnrýnt og þá meðal annars af Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. Hún gagnrýndi sérstaklega að Stubb og Støre hefðu ekki haft samráð við aðra leiðtoga. Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, hefur einnig sagt að símtalið varpi ljósi á það að samstöðu skorti innan Evrópu.
Rússland Vladimír Pútín Finnland Noregur Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira