Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. október 2026 17:45 Machado á samkomu Venesúelamanna í Panama fyrr á árinu. Getty María Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er komin aftur til landsins eftir nærri árs fjarveru. „
Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í forsetakosningunum 2024, staðfesti heimkomuna skömmu síðar. Reuters greinir frá því að teymi Machado hafi birt myndir af henni við kirkju í Lara-ríki. Ráðgjafi hennar segir að hún hyggist á næstu dögum hitta meðal annars fórnarlömb jarðskjálfta, fjölskyldur pólitískra fanga, erlenda erindreka og leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hún ætli jafnframt að þrýsta á um að dagsetning frjálsra og sanngjarnra forsetakosninga verði ákveðin. Machado yfirgaf Venesúela leynilega undir lok síðasta árs til að taka við friðarverðlaunum Nóbels í Noregi. Óljóst er nákvæmlega hvaða hlutverki Machado hyggst gegna nú þegar hún er komin aftur. Hún hefur áður sagt að hún myndi bjóða sig fram til forseta á ný ef kosningar yrðu haldnar. Stjórnarandstaðan hefur þrýst mjög á um nýjar kosningar og Machado hefur sagt að þær eigi að fara fram í síðasta lagi í júlí á næsta ári. Engin dagsetning hefur hins vegar verið ákveðin. Ýmislegt er breytt í Venesúela frá því að Machado fór úr landi. Bandarískar hersveitir handtóku Nicolás Maduro forseta í janúar og fluttu hann til Bandaríkjanna þar sem hann hefur verið ákærður fyrir ýmis brot. Delcy Rodríguez, sem áður var varaforseti Maduro, tók í kjölfarið við sem starfandi forseti með stuðningi Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Rodríguez hefur lofað kosningum en engin dagsetning hefur verið ákveðin. Upphaflegt 90 daga bráðabirgðatímabil stjórnar hennar er jafnframt liðið.
Venesúela Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira