ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. október 2026 17:30 Sigga Dögg veitti Jóni Gnarr og Viðreisn góð ráð í opna sambandinu. vísir „Ef það er einhver sem getur þetta er það Jón Gnarr. Hann er með bullandi ADHD, hann er alltaf að segja okkur það. Hann er góður í að halda mörgum boltum á lofti og redda sér. Ég held að Jón gæti verið maðurinn í þetta.“
Þetta sagði Sigga Dögg Arnardóttir, betur þekkt sem kynfræðingurinn knái Sigga Dögg, í nýjasta þætti Hvað er að frétta? þar sem hún gaf Jóni Gnarr og Viðreisn góð ráð fyrir yfirstandandi opið samband. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að neðan. Umræðan um Viðreisn hefst á mínútu 7.27. Opið samband með svo mörgum geti verið flókið. Hún segir skriflegan samning í opnu sambandi ekki endilega góða hugmynd. „Ég er ekki hrifin af því. Maður verður að hafa sveigjanleika. Það er dagsform og margir samningar, hvernig ætlarðu að muna þetta?“ Kafað ofan í mál Viðreisnar Metlægðin í október á lítið í storminn innan Viðreisnar sem náði hámarki með brotthvarfi Jóns Gnarr úr þingflokknum. Jón hefur farið í fjölda viðtala en margir eiga enn erfitt með að skilja hvers vegna hann kvaddi þingflokkinn - en þó ekki flokkinn. Kafað var ofan í vendingarnar í þættinum. Jón hefur sagt skilið við þingflokkinn en er enn félagi í Viðreisn. Hann gerði sögulegan skriflegan samning þar sem hann lofar að styðja öll mál ríkisstjórnarinnar, nema hann móðgist of mikið. Þá slíti hann samningnum. Verði hann veikur stekkur Viðreisnarmaður inn á þing fyrir hann. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur orðaði það svo að þetta væri ekki skilnaður Jóns við Viðreisn heldur væri þingmaðurinn og flokkurinn komin í opið hjónaband. Börnin í brennidepli Jón hefur nefnt að flokkurinn hafi gleymt málefnum barna með fjölþættan vanda. Fyrir síðustu kosningar lofaði Viðreisn að vinna niður biðlista barna, tryggja ókeypis sálfræðiþjónustu fyrir börn, efla forvarnir og tryggja meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni. Jón Gnarr og Þorgerður Katrín eru í aðalhlutverki í Hvað er að frétta? þessa vikuna. Að mati Jóns hefur ekki nóg gerst. Fyrir mánuði voru enn 2.700 börn á biðlista eftir geðheilbrigðisþjónustu, þar af 42 sem biðu eftir að komast að á göngudeild BUGL. Jón hefur einnig kvartað undan klíkuskap og óheilbrigðum starfsháttum í flokknum og gagnrýnt meint forystuleysi í þingflokknum. Formaðurinn í Víetnam Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins og utanríkisráðherra, og María Rut, varaformaður þingflokksins, fóru saman til Víetnam nýlega. Þorgerður var þar í vinnuferð til að undirrita fríverslunarsamning en María Rut í fríi ásamt Ingileif eiginkonu sinni sem er aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar. Fjarvera formannsins gæti haft áhrif því undanfarið hefur hvert áfallið rekið annað hjá flokknum. Þar má nefna: Einn flokksmaður hætti vegna tilraunar til vændiskaupa. Annar fór í meðferð. Lykilmaður í Reykjavík stal fé frá flokknum. Starfsfólk flokksins hefur skipt títt. Aðstoðarmaður ráðherra áreitti samstarfsfélaga. Þá tapaði flokkurinn þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst, sem var mikið áfall fyrir flokk sem stofnaður var um Evrópustefnu. Í síðustu viku kom Pawel Bartoszek inn á þing fyrir Sigmar Guðmundsson. Tveimur dögum síðar sagði Jón sig úr þingflokknum. Jón hefur einnig sagt að andað hafi köldu milli Þorgerðar Katrínar formanns og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Þær hafa báðar hafnað því og aðrir þingmenn flokksins hafa keppst við að lýsa jákvæðu andrúmslofti innan flokksins. Tíu ára flokkur í tilvistarkreppu? Viðreisn er tíu ára gamall klofningsflokkur úr Sjálfstæðisflokknum, stofnaður af fólki sem vildi horfa til aðildar að Evrópusambandinu. Flokkurinn komst í ríkisstjórn árið 2017 en Björt framtíð sleit samstarfinu eftir nokkra mánuði. Þorgerður Katrín tók við formennsku sama ár og flokkurinn komst svo aftur í ríkisstjórn árið 2024 eftir sjö ár í stjórnarandstöðu. Í kosningunum í nóvember 2024 lagði flokkurinn áherslu á að ná niður verðbólgu og vöxtum, greiða niður skuldir ríkisins, bæta geðheilbrigði ungs fólks, auðvelda fyrstu fasteignakaup, bæta námsárangur og breyta veiðigjaldakerfinu. Flokkurinn hefur staðið við breytingar á veiðigjöldum og kosið var um aðildarviðræður við ESB, en þeim var hafnað. Markmið um hallalaus fjárlög er fyrsta skrefið í átt að lækkun skulda, en enn á eftir að koma í ljós hvort það takist. Margir spyrja sig nú hvað flokkurinn sé þegar Evrópa virðist úr myndinni; frjálslyndari útgáfa af Sjálfstæðisflokknum, hægrisinnaðri útgáfa af Samfylkingunni eða flokkur sem þjáist af „Framsóknarheilkenni“ þar sem sérstaða er torfundin? Fótbolti og fleiri líkingar Óánægjan er ekki bundin við Jón. Formaður Norðausturráðs Viðreisnar birti grein þar sem hún viðurkenndi að hafa í nokkra mánuði íhugað að leggja Viðreisnarskóna á hilluna. Greinin byggir öll á líkingu við fótboltalið í hálfleik. Jón hefur sjálfur gripið til líkinga, allt frá Næturvaktinni til maka alkóhólista sem flytur út en skilur þó ekki við maka sinn. Íþróttamál Þorgerðar Katrínar er alþekkt, svo kannski hefur formaðurinn smitað út frá sér? Ríkisstjórnarflokkarnir telja nú 34 þingmenn og spurning er hvort fleiri kvarnist úr hópnum. Jón hefur útilokað samstarf við aðra flokka, svo kannski snýr hann aftur heim. Tíminn einn leiðir í ljós hver fer verst út úr þessum skilnaði. Eða reynist það gott ráð að opna hjónabandið? Þetta og meira til í Hvað er að frétta? í spilaranum hér efst í fréttinni.
Hvað er að frétta? Viðreisn Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira