Innlent

„Fylgjumst grannt með fram­vindu mála“

Freyja Þórisdóttir skrifar
Björn Hjaltason er mikill áhugamaður um skordýr en hann segist spenntur að sjá hvort fleiri moskítóflugur banki upp á.
Björn Hjaltason er mikill áhugamaður um skordýr en hann segist spenntur að sjá hvort fleiri moskítóflugur banki upp á. Aðsend

Moskítóflugan virðist ekki láta íslenska vetrarfrostið á sig fá en skordýraáhugamaður í Kjósinni fann flugu í garðinum hjá sér í vikunni. Hann hafði í sumar leitað að lirfum en án árangurs og átt ekki von á því að finna fleiri flugur. Nú bíður hann spenntur eftir því að sjá hvort fleiri stingi upp kollinum.

„Við erum hérna fleiri að halda upp á afmælið og erum að fylgjast með böndunum,“ segir Björn Hjaltason skordýraáhugamaður í samtali við blaðamann Vísis. Það sé nefnilega slétt ár síðan hann hafi fundið fyrstu moskítófluguna í garðinum en hann notar rauðvín blandað saman við sykur til að búa til lög. Hann dýfir böndum í löginn sem skordýr sækja í.

Ár síðan síðast

Hann segir enn ekkert hafa gerst síðan þann 12. október síðastliðinn en þá fann hann fyrstu moskítófluguna síðan fyrir rétt tæplega ári. Hann hafi nánast verið búinn að afskrifa það að flugan gæti þraukað veturinn.

„Þetta er bara sú eina sem hefur fundist,“ segir Björn en flugurnar fara í dvala yfir veturinn en verpa svo í vatn á vorin.

„Ef þú gleymir hjólbörunum þínum úti og þær fyllast af vatni þá geta þær ort í það bara og það,“ útskýrir hann en þrátt fyrir að hann hafi ekki fundið neinar lirfur í garðinum síðustu vikur hafi greinilega þessi eina, og mögulega fleiri, lifað af.

Hann segist telja að þetta séu ekki glænýjar flugur að utan heldur afkomendur þeirra sem hann hafi fundið síðasta haust en þær voru fyrstu sinnar tegundar hérlendis. 

„Spenntir fræðilega“

„Þetta hefur aldrei sést áður. Ég er búinn að vera með þessi bönd í mörg, mörg ár og þá ætti þetta að gerast reglulega, sko,“ útskýrir hann. Allt bendi til þess að þetta sé fluga úr sama holli og fannst í Kjósinni síðasta haust.

Flestir væru raunar ekkert sérstaklega glaðir að sjá hana en eruð þið spenntir þarna tveir að fylgjast með þessu?

„Já, við erum náttúrulega bara spenntir svona fræðilega,“ segir hann og bætir við:

„Við fylgjumst grannt með framvindu mála hérna á Kiðafelli.“

Prófessor í líffræði sagði í samtali við blaðamann Vísis að hann teldi allt líta út fyrir að vel hafi gengið að ráða niðurlögum moskító hér á landi. Það var fyrir um mánuði síðan en hún hafði ekkert látið á sér kræla í sumar.


Tengdar fréttir

Moskítóflugan lifði kuldakastið af

Moskítóflugan virðist hafa lifað af kuldakastið sem reið yfir landið í vikunni. Skordýraáhugamaður rak augun í flugu í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×