Innlent

Nýr for­seti ASÍ, um­deildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ fyrir rétt rúmri klukkustund. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæðum á móti 127 atkvæðum, Arnaldar Grétarssonar, mannfræðings. Georg tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin. Bjarki Sigurðsson fréttamaður fylgdist með í beinni útsendingu frá þingi og kemur með nýjustu tíðindi af ASÍ þingi í hádegisfréttum Bylgjunnar, en mikil spenna er einnig fyrir kosningu varaformanna síðar í dag. 

Einnig verður greint frá því að Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og sýknað mann af ákæru fyrir nauðgun. Konan hlaut margþætta áverka á borð við beinbrot. Talskona Stígamóta kallar eftir endurmenntun í Landsrétti og segir dóminn ótrúleg skilaboð út í samfélagið. Allir virðist mega ef rætt sé um BDSM. 

(1) Georg Páll Skúlason var kjörinn nýr forseti ASÍ í morgun. Spenna er fyrir vali varaformanna síðar í dag vegna deilna milli Eflingar og VR. (2) Formaður Viðreisnar segir brotthvarf Jóns Gnarr úr þingflokknum högg fyrir flokkinn og ríkisstjórnina. (3) Talskona Stígamóta segir sýknudóm í meintu nauðgunarmáli ótrúleg skilaboð út í samfélagið. Hún kallar eftir endurmenntun í Landsrétti. (4) Kynning á nýrri Teslu bifreið, sem fullyrt er að geti flogið, virðist snjöll markaðsbrella, að sögn bílafréttamanns. (5 SPORT) Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari í fótbolta hrósar Orra Steini Óskarssyni fyrirliða fyrir að taka vel á agabrotum leikmanna liðsins.

Þá verður fjallað dóm í Dettifossmálinu svonefnda, Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru báðir dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að málinu. Skipverjarnir tveir sem komu að málinu fengu báðir fimm ára dóm. Þetta segir Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, saksóknari málsins, í samtali við fréttastofu.

Einnig verður rætt um kynningu á nýrri Teslu bifreið, sem fullyrt er að geti flogið. Um snjalla markaðsbrellu virðist vera að ræða, að sögn bílafréttamanns og markaðsfræðings. Almenningur sé varla að fara að fljúga um lágloftin í nánustu framtíð, en bíllinn sé þó áhugaverður og til marks um að tækninni fleygi fram.

Hádegisfréttir á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður og þulur er Telma L. Tómasson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×