Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 16. október 2026 18:15 Hilmar Smári var stigahæstur hjá heimamönnum. Pawel Cieslikiewicz Höttur vann spennandi 98-103 sigur á Stjörnunni í annarri umferð Bónus- deildar karla í kvöld. Stjarnan náði að vinna upp fimmtán stiga forskot gestanna í fjórða leikhluta en Höttur var sterkari á lokamínútunum og knúði fram öflugan sigur. Höttur byrjaði leikinn betur og höfðu frumkvæðið í fyrsta leikhluta. Liðið náði snemma átta stiga forskoti en Stjörnumönnum tókst að minnka muninn og var staðan 18-23 að loknum fyrsta leikhluta. Gestirnir héldu áfram að hafa yfirhöndina í öðrum leikhluta og náðu mest ellefu stiga forskoti, 36-47. Heimamenn gáfust þó ekki upp og náðu þeir að saxa á forskotið undir lok hálfleiksins. Staðan var þá 46-50 þegar flautað var til hálfleiks. Stjarnan náði að jafna metin í 55-55 snemma í þriða leikhluta en eftir það fór að halla undan fæti. Gestirnir nýttu færin sín betur og gengu á lagið og juku forskotið jafnt og þétt. Höttu vann leikhlutann 31-20 og munaði því fimmtán stigum á liðunum þegar fjórði leikhluti hófst. Stjarnan hóf fjórða leikhluta og krafti og náðu fljótlega að minnka muninn í sex stig. Höttur svaraði hins vegar fyrir sig og jók forskotið aftur. Heimamenn gáfust þó ekki upp og náðu aftur að saxa verulega á forskotið. Þegar tæpar tvær mínútur voru eftir var staðan orðin jöfn, 95-95, og mikil spenna komin í leikinn. Marquis Jackson reyndist öruggur á vítalínunni fyrir Hött og setti niður sex vítaskot á lokamínútunni. Stjarnan fékk tækifæri til að jafna en þriggja stiga skot frá Ægi og Hilmari gengu ekki upp. Niðurstaðan 98-103 fyrir Hetti eftir afar spenanndi lokakafla. Atvik leiksins Endurkoma Stjörnunnar í fjórða leikhluta. Þeim tókst að sigra fjórða leikhlutann örugglega 32-22 en það dugði þó ekki til. Stjörnur og skúrkar Hilmar Smári Henningsson var stigahæstur hjá Stjörnunni með 29 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar. Milos kom þar næstur með 18 stig og 5 fráköst. Marquis Jackson var með 27 stig fyrir Hött og 7 stoðsendingar. M. Jackson var í stuði í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz Stemning og umgjörð Frábær stemning í ÞG-höllinni og umgjörðin til fyrirmyndar. Mjög góð mæting í ÞG-höllina í kvöld.Vísir/Pawel Cieslikiewicz Dómarar Jóhannes Páll Friðriksson, Gunnlaugur Már Briem og Sigurbaldur Frímannsson sáu um dómgæsluna í kvöld. Dómaraþríeykið góða.Vísir/Pawel Cieslikiewicz Viðtöl Viðar Örn Hafsteinsson: „Þetta er keppni í því að vinna“ Emil Barja: „Verðum að vera betri þar ef við ætlum að gera eitthvað.“ Emil fer yfir málin með sínum mönnum.Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Ég var ánægður með fjórða leikhlutann. Mér fannst mikil orka og við komum mikið til baka, en hinir þrír fannst mér bara alls ekki nógu góðir.“ Emil var þá spurður hvort hann hefði séð einhvern mun á liðinu frá tapinu gegn Val í fyrstu umferð. „Já, það var miklu meiri orka og svona. Það vantaði ekki. En mjög ósáttur með öll sóknarfráköstin sem þeir fengu. Þeir fengu að taka einhver 20 sóknarfráköst, og það er bara mjög erfitt að vinna leiki þegar þeir fá yfir 20 sóknarfráköst.“ Emil sagði fjölda sóknarfrákastanna einnig hafa áhrif á varnarleik liðsins. „Það dregur svolítið orkuna úr varnarleiknum alltaf þegar við þurfum að setja upp nýja vörn svona oft. Þannig að við verðum að vera betri þar ef við ætlum að gera eitthvað.“ Þegar Emil var spurður hvað Stjörnumenn þyrftu helst að bæta var svarið skýrt. „Fráköstin, númer eitt. Við þurfum aðeins að laga líka varnarleikinn okkar. Pick and roll varnarleikurinn er ekki alveg nógu góður. Þeir voru að ná allt of einföldum sendingum. Þannig að það er eitthvað sem við þurfum að laga.“ Hann vill einnig sjá fleiri leikmenn taka ábyrgð í sóknarleiknum. „Svo þurfum við bara að fá fleiri sóknarógnir. Það eru þrír hérna með yfir 20 og það er enginn annar yfir tíu. Þannig að ég veit að við höfum leikmenn í það og svo vonandi bætist við einn leikmaður líka í viðbót.“ Körfubolti Bónus-deild karla Stjarnan Höttur