Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Jakob Bjarnar skrifar 12. október 2026 10:28 Þó fólk á Íslandi hafi ekki gefið mikið fyrir hina nýstárlegu landafræði Trumps telja höfundar ítalskrar kennslubókar Ísland tilheyra landi hinna frjálsu. vísir/samsett Svo virðist sem breytt heimskipan Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sú sem hann sló eftirminnilega fram á Truth Social og sýndi Grænland og Ísland sem hluta Bandaríkjanna, sé ekki aðeins bundin við hugarheim forsetans. Ísland tilheyrir Bandaríkjunum í nýlegri ítalskri kennslubók.
Fæstir hafa gefið mikið fyrir þessa nýstárlegu landafræði. Vísir heyrði í nemanda í ítölsku sem rak í rogastans þegar hann gluggaði í nýlega kennslubók í tungumálinu. Þar ber ekki á öðru en að Ísland teljist til Bandaríkjanna. Um er að ræða bókina „A Lezione di italiano“ og höfundar eru Antonella Bolzoni og Pier Cesare. „Ég er í ítölsku B1 og var að fá þessa bók sem er fyrsta útgáfa, prentuð í febrúar 2026 frá útgáfufélagi í Flórens,“ segir nemandinn forviða. Um er að ræða miðstig í ítölsku þar sem gengið er út frá því að nemendur skilji aðalatriði um kunnugleg efni sem tengjast vinnu, skóla og tómstundum. Þú átt að geta bjargað þér á ferðalögum og skrifað einfaldan texta um málefni sem þér eru kunn. Ómögulegt er þó að fullyrða hvort um sé að ræða einhver áhrif frá Trump, hvort gervigreindin hafi hreinlega verið nýtt til að setja saman kennslubókina eða höfundar ekki gætt nákvæmni við smíði bókarinnar. Raunar er bókin gefin út sjö mánuðum áður en Trump steig fram með landakortið sitt í september. Spurningin sem um ræðir og sjá má að neðan snýr að því í hvaða heimsálfu þekkt minnismerki á borð við Taj Mahal og Frelsisstyttuna sé að finna. Vísað er til fimm heimsálfa í spurningunni og virðist ekki gerður greinarmunur á Suður- og Norður-Ameríku. Svona lítur landafræðin út í ítalskri kennslubók. Menn hafa talið Truth Social hálfgert flopp en Trump stofnaði miðilinn ásamt öðrum 2022 eftir að hann hafði verið bannaður á Twitter og Facebook eftir árásina á þinghúsið. Þeir miðlar drógu bannið til baka en Trump vill hins vegar ekki sjá að viðra hugleiðingar sínar þar eftir bannið. Samkvæmt New York Times sækja 28 milljónir manna miðilinn heim mánaðarlega og áhrifin ná víða, meðal annars í ítalskar kennslubækur.
Donald Trump Ítalía Skóla- og menntamál Landamæri Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið