Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Samúel Karl Ólason skrifar 9. október 2026 13:43 Fá vettvangi árásar þar sem fimmtán ára nemandi myrti húsvörð í skóla og særði tvo til viðbótar. EPA/MARCIN OBARA Lögreglan í Póllandi hefur handtekið að minnsta kosti tíu ungmenni vegna hótana varðandi hnífaárásir í skólum þar í landi. Skólum og leikskólum hefur verið lokað í kjölfar tveggja árása í Póllandi á tveimur dögum.
Í gær (fimmtudag) myrti fimmtán ára strákur húsvörð í skóla nærri Wyszków. Hann var vopnaður hníf og særði tvo til viðbótar, þar á meðal skólastjórann, áður en hann var stöðvaður. Pilturinn var með myndavél á höfðinu sem talið er að hann hafi ætlað að nota til að streyma frá árásinni á netinu, samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins. Degi áður, eða á miðvikudag, hafði nítján ára maður ráðist á hóp fólks í skóla í Ostrołęka. Hann særði níu áður en hann var handtekinn. Fyrr þann dag hafði lögreglan í Sierpc stöðvað táning sem grunaður er um að hafa ætlað sér að ráðast á fólk í skóla sínum. Í kjölfarið er búið að handtaka tíu ungmenni til viðbótar og þar á meðal er sautján ára piltur sem talinn er bera ábyrgð á gervigreindarmyndbandi þar sem bárust hótanir um „blóðugan föstudag“. Þetta myndband er sagt hafa leitt til ólgu í Póllandi en yfirvöld segja að lokun skólanna tengist því ekki sérstaklega. Lögregluþjónar voru í morgun sendir til um tíu þúsund skóla í Póllandi. Hér að neðan má sjá stutta frétt TVP á ensku um stöðuna í Póllandi. Police in Warsaw detained three teenage students over online threats to kill or harm others, as concerns grow following a series of violent incidents at schools in Poland’s Masovia region. The attacks over two days left one person dead and more than 10 injured. https://t.co/5QgWpfdhh3— TVP World (@TVPWorld_com) October 9, 2026 Í frétt Reuters segir að handtökunum og lögregluþjónunum sé ætlað að sefa ótta fólks vegna árásanna og hótana um þennan blóðuga föstudag. Mikil umræða um þær hefur átt sér stað á samfélagsmiðlum í Póllandi, sem er sagt hafa ýtt undir óttann. Reuters segir að umræðan hafi að miklu leyti snúist um einhvers konar áskorun sem hafi verið í dreifingu á netinu, þar sem ungmenni eru hvött til árása. Lögreglan segir að engin ummerki um slíkt hafi fundist. Yfirvöld hafa varað við upplýsingaóreiðu í tengslum við árásirnar og samsæriskenningum sem hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Ráðherra sagði í viðtali í morgun að eðlilega fyndi fólk fyrir kvíða vegna árásanna en það benti ekkert til einhvers landslægs ástands eða samráðs milli árásarmanna.
Pólland Erlend sakamál Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira