Handbolti

„Stemning í liðinu og traust“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rut Arnfjörð Jónsdóttir er í hlutverki aðstoðarþjálfara Hauka.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir er í hlutverki aðstoðarþjálfara Hauka. Vísir/Sigurjón

„Þetta var svolítil brekka þarna í byrjun,“ sagði Rut Arnfjörð Jónsdóttir, aðstoðarþjálfari Hauka, eftir sigur liðsins gegn Fram í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld.

„Við vorum komnar undir með mörgum mörkum og það má segja að Sara (Sif Helgadóttir, markvörður Hauka) hafi haldið okkur inni í leiknum. En ég er gríðarlega ánægð með karakterinn í liðinu að hafa komið svona til baka. Við vorum undir með einu í hálfleik, sem var bara fín staða miðað við byrjunina,“ bætti Rut við.

Eftir 20 mínútna leik voru Haukar 10-4 undir, með sjö tapaða bolta og um 33 prósent skotnýtingu. Hins vegar búa Haukar vel að því að eiga eina Söru Sif í markinu.

„Sara var stórkostleg í dag. Hún var bara algjörlega stórkostleg. Hún er bara stór partur af því að við komumst inn í leikinn og vinnum,“ sagði Rut.

„Ég held að þetta sé fyrsti leikurinn sem við erum með svona mikið af töpuðum boltum. Þetta hefur ekki verið svona eins og núna. En auðvitað er þetta bara toppleikur. Fram er með gott lið. Þetta var kannski aðeins of mikið af tæknifeilum, en ég er mjög ánægð með að við höfum svona hægt og rólega komist inn í þetta og klárað þetta. Það þarf karakter.“

Hún hélt svo áfram að hrósa karakternum í liðinu.

„Þetta eru bara stelpur með karakter. Svo er bara stemning í liðinu og traust. Þær halda í leikplanið og þá kemur þetta hægt og rólega. Vissulega var stress inn á milli sem maður hefði óskað að væri ekki, en það var bara traust á konseptið og sigla þessu hægt og rólega.“

Þá segir hún ýmislegt sem liðið þarf að laga fyrir næstu umferðir, þrátt fyrir sigurinn.

„Heldur betur. Við þurfum klárlega að skoða okkar mál og finna ákveðna ró í okkar leik til að eiga betri leik á móti svona góðu liði. Ég vil bara hrósa Fram líka fyrir að vera með gott lið. Þetta eru öflugar og flottar stelpur. Ég tek ekkert af þeim, en við þurfum klárlega að skoða þessa tæknifeila.“

Haukar eru þó með fullt hús stiga eftir sjö umferðir, en Rut segir að leikurinn í kvöld hafi verið vakning fyrir liðið.

„Klárlega. Það sást í byrjun að við þurfum að mæta betur til leiks. Við erum líka að fara að mæta hörkuliðum í ÍBV og Gróttu og við getum klárlega ekki bara haldið að við séum orðnar svakalega öflugar. Það þarf að hafa fyrir hverju einasta stigi og ég er mjög ánægð með stelpurnar í dag að hafa unnið sig út úr þessari byrjun,“ sagði Rut að lokum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×