Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. október 2026 21:20 Sara Sif Helgadóttir var frábær í marki Hauka í kvöld. Vísir/Anton Brink Haukar eru enn með fullt hús stiga á toppi Olís-deildar kvenna í handbolta eftir sterkan þriggja marka sigur gegn Fram í kvöld, 26-29. Heimakonur í Fram voru mun sterkari aðilinn stærstan hluta fyrri hálfleiks og byggðu jafnt og þétt upp gott forskot. Haukastelpur voru hreint út sagt afar slakar fyrstu tuttugu mínútur leiksins og skoruðu aðeins fjögur mörk á þeim tíma. Á sama tíma tapaði liðið sjö boltum og var aðeins með 33 prósent skotnýtingu. Hins áttu gestirnir hauk í horni því Sara Sif Helgadóttir stóð sína vakt í markinu vel. Hún hélt gestunum í seilingarfjarlægð með hverri vörslunni á fætur annarri og munurinn á liðunum varð aldrei meiri en sex mörk. Þegar þessum slæma kafla Hauka lauk loksins náði liðið heldur betur vopnum sínum og saxaði hratt og örugglega á forskot Framara. Haukar minnkuðu muninn niður í eitt mark fyrir hálfleikshléið og staðan var 14-13, Fram í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Gestirnir í Haukum héldu áfram að hamra járnið á meðan það var heitt í upphafi seinni hálfleiks og náðu fljótt forystunni. Um miðbik seinni hálfleiks virtust Haukar vera að sigla öruggum sigri heim þegar liðið náði fjögurra marka forskoti, en Framarar gáfust ekki upp og náðu að stoppa í götin. Haukar, með Söru Sif áfram í góðu stuði í markinu, héldu þó forskotinu allan tímann og unnu að lokum sterkan þriggja marka sigur, 26-29. Haukar tróna því enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sjö umferðir. Fram situr hins vegar í fimmta sæti með átta stig, sex stigum minna en Haukar. Atvik leiksins Fyrstu tuttugu mínútur leiksins voru í raun ótrúlegar. Haukar, toppliðið, taplausa liðið, virtist bara ekki geta keypt sér mark. Ógrynni af töpuðum boltum og skotnýting sem fékk mann til að hugsa til þess hvort einhver Space Jam áhrif hefðu átt sér stað. Stjörnur og skúrkar Sara Sif Helgadóttir var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður vallarins í kvöld. Sara varði 22 bolta í marki Hauka og endaði með 48 prósent hlutfallsmarkvörslu. Eftir erfiða byrjun fann Jóhanna Margrét Sigurðardóttir einnig fjölina í liði Hauka og endaði með átta mörk og þrjár stoðsendingar, en einnig sjö tapaða bolta. Í liði Fram var Sóldís Rós Ragnarsdóttir atkvæðamest með níu mörk, en hún þurfti þó 17 skot til. Dómararnir Jónas Elíasson og Þorvar Bjarmi Harðarson gerðu fá, ef einhver, mistök í kvöld. Stóðu sína vakt vel. Hins vegar var flautan hans Þorvars Bjarma að stríða honum og hljómaði frekar eins og veiklulegt blístur en flaut úr dómaraflautu. Hann skutlast líklega eftir nýrri í fyrramálið. Stemning og umgjörð Lambhagahöllin bauð upp á fínustu stemningu í kvöld og lítið sem ekkert hægt að setja út á umgjör Framara. Handbolti Olís-deild kvenna Fram Haukar