Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Árni Sæberg skrifar 1. október 2026 15:38 Ingó veðurguð og lögmaður hans, Auður Björg Jónsdóttir, í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2022, þegar annað meiðyrðamál var til meðferðar. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingólfs Þórarinssonar, Ingós veðurguðs, dauð og ómerk og gert henni að greiða Ingólfi 350 þúsund krónur auk einnar milljónar króna í málskostnað. Í ummælum sínum gerði konan því skóna að Ingólfur legði það í vana sinn að nauðga ungum konum og beita þær ofbeldi.
Landsréttur kvað upp dóm sinn þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Ummælin sem um ræðir lét konan, hin 51 árs gamla Pálína Helga Þórarinsdóttir, falla í athugasemd á Facebook, sem var svar við ummælum manns sem sagði „Áfram gakk Ingó minn.“ „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ spurði Pálína Helga. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu var að sýkna hana af öllum kröfum Ingólfs á þeim grundvelli að ummælin rúmuðust innan tjáningarfrelsis hennar og hefðu ekki farið í bága við ærumeiðingaákvæði almennra hegningarlaga. Dómur héraðsdóms er ítarlega reifaður í fréttinni hér að neðan: Ingólfur hefur áður unnið meiðyrðamál af svipuðum toga þegar hann lagði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson í Landsrétti, eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafði sýknað Sindra Þór. Að mati Landsréttar mátti Sindri Þór ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ Ummæli Sindra Þórs voru dæmd dauð og ómerk. Sindri Þór var dæmdur til að greiða Ingólfi 900 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Þá var hann dæmdur til að greiða Ingólfi málskostnað. Þá var þriðja meiðyrðamáli Ingólfs lokið með dómsátt og afsökunarbeiðni Silju Bjarkar Björnsdóttur.
Mál Ingólfs Þórarinssonar Tjáningarfrelsi Dómsmál Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira