Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2026 10:40 Dönsk F-35 Lightning herþota á Kangerlussuaq-flugvellinum í Grænlandi. Tvær slíkar flugvélar hafa að undanförnu verið gerðar út frá Íslandi til að vakta lofthelgi Grænlands. Rune Dyrholm/Danski herinn Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir.
Þegar F-35 þotunum var flogið frá Íslandi til Grænlands fengu þær eldsneyti úr franskri eldsneytisvél yfir Íslandi, samkvæmt frétt á vef danska varnarmálaráðuneytisins. Áhöfn eftirlitsflugvélar Atlantshafsbandalagsins fylgdist svo með flugferðinni en herþotunum var einnig fylgt eftir af danskri Challenger-eftirlitsflugvél. Bandarísku og kanadísku þotunum var flogið til Grænlands frá Goose Bay í Kanada. Hér má sjá nokkr af þotunum. Í forgrunni er Dönsk F-35 Lightning herþota og fyrir aftan hana má sjá kanadíska F/A-18 Superhornet. Tvær kanadískar F-18 voru notaðar á æfinguum og fjórar bandarískar F-16.Rune Dyrholm/Danski herinn Þó þetta hafi verið í fyrsta sinn sem dönskum F-35 herþotum var lent á Grænlandi hafa Danir oft gert F-16 þotur út frá Grænlandi í gegnum árin. Varnarmálaráðuneytið danska birti í morgun myndband þar sem rætt var við einn af flugmönnum F-35 þotnanna, þar sem hann sagði frá æfingunum og hvernig þær voru framkvæmdar. Myndbandinu fylgir mikið af myndefni af flugvélunum á flugi. Æfingarnar, sem kallast Operation Vanguard í Bandaríkjunum, eru liður í Arctic Sentry verkefni NATO, sem gengur út á að auka og bæta varnir bandalagsins á norðurslóðum. Verkefni þetta var sett á laggirnar eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, krafðist þess að NATO tæki aukna ábyrgð á vörnum norðurslóða. Var það eftir að hann byrjaði að krefjast þess að Bandaríkin eignuðust Grænland á grunni þjóðaröryggis Bandaríkjanna og vegna meintrar ógnar frá Rússlandi og Kína. Bandarískar F-16 herþotur á flugi yfir Grænlandi í fylgd KC-135 eldsneytisflugvélar fyrr í vikunni.Maj. David Brown/Flugher Bandaríkjanna Undanfarnar tvær vikur hafa rúmlega fjögur hundruð hermenn frá ellefu aðildarríkjum NATO einnig tekið þátt í æfingum á jörðu niðri í suðurhluta Grænlands. Þær æfingar bera nafnið Arctic Shield og er ætlað að þjálfa hermenn við erfiðar aðstæður á norðurslóðum. Hermenn frá ellefu aðildarríkjum NATO hafa átt í æfingum á sunnanverðu Grænlandi undanfarnar tvær vikur.Simon Elbeck/Danski herinn Helsta markmið æfinganna er, samkvæmt danska varnarmálaráðuneytinu, að láta hermenn upplifa hversu erfitt það er að lifa af á norðurslóðum, við þessar erfiðu aðstæður.
Grænland Danmörk Bandaríkin Kanada Norðurslóðir Hernaður NATO Öryggis- og varnarmál Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Fleiri fréttir Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Sjá meira
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent