Hafna viðræðum til hægri Smári Jökull Jónsson skrifar 15. september 2026 08:03 Elisabeth Thand Ringquist er formaður Miðflokksins í Svíþjóð sem segist tilbúinn í vðræður við Jafnaðarmenn. Vísir/EPA Á morgun verður lokaniðurstaða þingkosningana í Svíþjóð ljós en óformlegar þreifingar formanna flokka eru þó þegar hafnar. Miðflokkurinn hafnaði í gær viðræðum við flokk núverandi forsætisráðherra og sagði hann hafa tapað kosningunum.
Samkvæmt stjórnmálaskýrendum í Svíþjóð þarf mikið að koma til, til að hægri flokkarnir sem mynda núverandi ríkisstjórn haldi velli. Líklegast er að Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, fái stjórnarmyndunarumboðið en Jafnaðarmenn héldu sig að mestu til hlés í gær og sögðu ótímabært að tjá sig um næstu skref fyrr en úrslit kosninganna væru endanlega ljós. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna Amanda Lind Talsmaður Græningja. Daniel Helldén Talsmaður Græningja. Ebba Busch Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra. Elisabeth Thand Ringqvist Formaður Miðflokksins. Jimmie Åkesson Formaður Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson Formaður Sósíaldemókrata. Nooshi Dadgostar Formaður Vinstriflokksins. Simona Mohamsson Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra. Ulf Kristersson Formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Síðustu atkvæðin, svokölluð miðvikudagsatkvæði, verða talin á morgun. Þar er um að ræða atkvæði frá Svíum sem búa erlendis auk utankjörfundaratkvæða sem póstlögð voru áður en kjörfundi lauk en bárust ekki til kjörstjórna áður en hafist var handa við talningu. Þó Jafnaðarmenn haldi sig til hlés að mestu hafa aðrir formenn verið nokkuð duglegir að tjá sig. Ulf Kristersson forsætisráðherra og formaður Moderaterna, daðraði til að mynda duglega við Miðflokkinn og sagði ljóst að flokkurinn væri ekki hluti af „sósíalíska meirihlutanum sem vill hækka skatta.“ Forystumenn Miðflokksins gáfu hins vegar lítið fyrir umleitanir Kristersson og nánast lokuðuðu og læstu dyrunum til hægri. „Þeir gengu til kosninga með það markmið að mynda ríkisstjórn fulla af Svíþjóðardemókrötum og þannig verður það ekki. Kristersson tapaði þessum kosningum,“ sagði Hanne Hervieu meðal annars en hann situr í stjórn Miðflokksins. Niðurstöður þingkosningaþegar 95% atkvæða hafa verið talin Gætu slakað á sínum kröfum Þó er ljóst að núverandi ríkisstjórnarflokkar munu halda áfram að setja pressu á Miðflokkinn, sem segja má að segja systurflokkur Framsóknar hér á landi. Miðflokkurinn hafnaði því fyrir kosningar að sitja í ríkisstjórn með Vinstri flokknum og því verður stjórnarmyndun til vinstri einnig flókin. Svíþjóðardemókratar töpuðu fylgi í kosningunum í fyrsta sinn síðan flokkurinn komst á þing árið 2010. Tapaði flokkurinn fylgi í 285 sveitarfélögum af 290 og er ekki lengur næst stærsti flokkur Svíþjóðar. Í morgun skrifar Aftonbladet að þessi nýja staða gæti þýtt að Svíþjóðardemókratar slaki á kröfum sínum um ráðherrastóla. Segir í umfjöllun miðilsins að þetta hafi verið rætt innan flokksins og væri þá markmiðið að lokka forystumenn Miðflokksins að samningaborðinu sem voru skýrir með það fyrir kosningar að vilja ekki starfa með Svíþjóðardemókrötum í ríkisstjórn.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira