Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. ágúst 2026 11:26 Mávanes 9 hefur verið sett á sölu en eignin er 316 fermetrar að stærð á 1.400 fermetra lóð. Betri stofan Stórglæsilegt einbýlishús frumbyggjanna Ragnhildar Björnsson og Arnbjörns Kristinssonar að Mávanesi 9 á Arnarnesi í Garðabæ hefur verið sett á sölu. Húsið var teiknað af Helga Hjálmarssyni arkitekt, reist árið 1970 og er 316,4 fermetrar að stærð. Eigendur óska eftir tilboði.
Húsið stendur á 1.400 fermetra suðvesturlóð alveg við sjóinn sem tryggir ómótstæðilegt og óhindrað útsýni. Húsið hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi, hjónanna Ragnhildar og Arnbjörns, en þau eru fallin frá. Eignin telur 316,4 fermetra og skiptist í 211,9 fermetra aðalhæð, 62,8 fermetra bílskúr og 41,7 fermetra bátaskýli. Gengið er gegnum skjólgóðan garð að húsinu. Komið er inn í flísalagða forstofu, á vinstri hönd er snyrtileg og flísalögð gestasnyrting og á hægri rúmgott herbergi með góðu sjávarútsýni sem getur nýst vel sem skrifstofa eða svefnherbergi. Úr anddyrinu er gengið inn í stofuna sem er björt og rúmgóð, með arni og glæsilegu útsýni yfir hafið. Frá stofunni er hægt að ganga út um rennihurð á pall með útiarni og þaðan áfram út í garð. Borðstofan er opin og björt með gluggum til norðurs og stórum gluggum sem snúa mót suðri með sjávarútsýni. Eldhúsið er samliggjandi borðstofunni og er þar sérsmíðuð eldhúsinnrétting og parket á gólfi. Gengið er niður þrjár tröppur á neðri pall þar sem sjónvarpsstofan er staðsett og frá efri palli er einnig gengið út á skjólsælan pall til suðurs með útiarni. Húsið er sérlega glæsilegt.Betri stofan Milli eldhússins og auka andyrris er þvottahús og frá því anddyri er gengið inn á teppalagðan svefnherbergisgang sem leiðir inn í svefnálmu hússins með fjórum svefnherbergjum, þar af er eitt rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og inn af því er sérbaðherbergi sem er útbúið baðkari. Bílskúrinn er 62,8 fermetrar með tveimur innbyggðum geymslum, hleðsluplássi og góðu athafnasvæði. Á neðri hæð er 41,7 fermetra bátaskýli sem snýr til suðurs út í garðinn. Rýmið er með bæði hefðbundinni hurð og bílskúrshurð og gæti nýst sem bátaskýli, vinnustofa, geymsla eða auka svefnherbergi. Við húsið er hellulagt plan fyrir þrjá bíla. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis. Húsið séð úr lofti.
Fasteignamarkaður Garðabær Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira