Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra Samúel Karl Ólason skrifar 4. ágúst 2026 17:10 Todd Blanche, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump og starfandi dómsmálaráðherra. Hann er líklegur til að verða formlega ráðherra eftir að hann gerði samkomulag við tvo þingmenn Repúblikanaflokksins sem höfðu staðið í vegi hans. AP/Mark Schiefelbein Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, gekk í dag skrefinu nær því að fá starfið að fullu. Tilnefning hans til embættisins var samþykkt úr dómsmálanefnd öldungadeildarinnar en atkvæðagreiðslan fór 12-10 og fylgdi alfarið flokkslínum. Tilnefningin hefur um nokkuð skeið verið strand í nefndinni vegna andstöðu tveggja þingmanna Repúblikanaflokksins.
Hann var einkalögmaður Trumps um tíma og var svo gerður að næstráðanda í dómsmálaráðuneytinu þegar Pam Bondi stjórnaði þar. Þegar hún var rekin af Trump, meðal annars vegna þess að Trump þótti hún ekki ganga nægilega hart fram gegn pólitískum andstæðingum sínum. Sjá einnig: Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Blanche hefur í opinberum störfum sínum ítrekað lýst yfir skoðunum á því að framkvæmdavaldið, forsetaembættið, hafi umfangsmeiri valdheimildir en áður hefur verið talið. Þá hefur hann verið harðlega gagnrýndur vegna þess hvernig hann hélt á spöðunum þegar kom að birtingu Epstein-skjalanna svokölluðu. Umdeildasta verk hans snýr þó að samkomulagi sem hann gerði við Trump sjálfan vegna málaferla forsetans gegn Skattinum. Þetta samkomulag fól í sér að Trump og fjölskylda hans fengu formlega afsökunarbeiðni á því að skattskýrslum hans var lekið til fjölmiðla, ásamt skattskýrslum annarra auðmanna, þegar hann var fyrst forseti. Þá hefur Skattinum verið meinað að rannsaka Trump og fjölskyldu hans vegna mögulegra skattsvika. Trump mun lengi hafa verið til rannsóknar hjá Skattinum vegna gruns um að hann hafi vangreitt skatta um árabil. Sjá einnig: Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu New York Times hefur fjallað um það að Trump gæti skuldað allt að hundrað milljónir dala í vangreidda skatta, sem hann mun komast hjá því að greiða vegna samkomulagsins. Blanche gerði í gær samkomulag við þá John Cornyn og Thom Tillis en þeir hafa ekki viljað veita Blanche atkvæði fyrr en hann staðfesti skriflega að ráðuneytið muni ekki stofna þennan sjóð og felldi úr gildi friðhelgi Trumps og fjölskyldu hans gagnvart Skattinum. Það hefur Blanche samþykkt að hluta til. Sjóðurinn verður ekki stofnaður en Trump og fjölskylda hans munu áfram hafa friðhelgi gegn rannsóknum Skattsins, að hluta til. My team and I have met with committee members and Senators over the past several weeks and addressed any concerns or outstanding questions. We have enjoyed good faith discussions, and as a result issue the following order and update with regard to the May IRS settlement. The… pic.twitter.com/U6hs15kw2D— Acting AG Todd Blanche (@DAGToddBlanche) August 3, 2026 Í frétt New York Times segir að gagnrýnendur dragi í efa að yfirlýsing Blanches varðandi sjóðinn sé bindandi. Þá hefur það einnig verið gagnrýnt að Trump fái að komast hjá því að greiða áðurnefnda vangreidda skatta. Dick Durbin, öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins sem situr einnig í dómsmálanefndinni, sagði í dag að Blanche gæti hæglega gefið út nýja tilskipun um stofnun skaðabótasjóðs, nokkrum mínútum eftir að hann hefur fengið blessun öldungadeildarinnar, sem Repúblikanar stýra. Sen. DURBIN: This isn’t Democrats vs. Republicans. This is rule of law vs. lawlessness. The Attorney General is the people’s lawyer. Todd Blanche continues to act as Donald Trump’s personal lawyer, treating the Justice Department like a law firm serving one client—the President. pic.twitter.com/pOW7x7apQj— Senate Judiciary Democrats 🇺🇸 (@JudiciaryDems) August 4, 2026
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira