Selja herrasetur í Þingholtunum Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. júlí 2026 10:45 Viðar og Sveinn hafa sett einbýlishús sitt í Þingholtunum á sölu. Viðar Eggertsson leikstjóri og Sveinn Ísarr Kjartansson, yfirmatreiðslumaður hjá Seðlabanka Íslands, hafa sett á sölu þriggja hæða einbýlishús sitt að Laufásvegi 39 í Þingholtunum. Ásett verð hússins er 139,9 milljónir króna.
Um er að ræða 130,6 fermetra, þriggja hæða einbýlishús með fallegum einkagarði í miðbæ Reykjavíkur. Húsið hefur verið endurnýjað verulega á síðustu árum en nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis. „Þetta sögufræga hús keyptum við af Rósu Ingólfs fyrir rúmum tólf árum og í hennar tíð voru stofurnar fölbleikar og hefði þessvegna alveg geta heitið Meyjarskemman eða Dyngjan 👄 Við höfum smátt og smátt endurbætt það af virðingu við uppruna þess og gert það að Herrasetrinu Skurn,“ skrifaði Viðar um húsið í Facebook-færslu. Eignin er á frábærum stað. „Húsið var byggt 1901 og hér fæddist hinn frægi fyrrum bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar Birgisson, og bjó hjá ömmu sinni og afa í húsinu sem barn og ærslaðist í ævintýraheimi Þingholtanna. Hann hefði örugglega sagt og tekið undir með okkur: „Það er gott að búa á Herrasetrinu Skurn!“ Þegar Gunnar fæddist í húsinu var það mun minna en var stækkað á 9. áratugnum síðasta,“ skrifaði hann einnig. Gengið er inn um aðalinngang á aðra hæð hússins, upp tröppur úr garðinum. Á annarri hæðinni er eldhús samliggjandi stofurýmum, borðstofa samtengd eldhúsi og svefnherbergi sem er nú notað sem sjónvarpsstofa og bókaherbergi. Á annarri hæðinni er alrými, lesherbergi, setustofa, borðstofa og eldhús. Á fyrstu hæðinni er stórt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Þriðja hæðin er undir súð og þar er stofa sem er notuð sem vinnuherbergi, svefnherbergi og snyrting með vaski og salerni. Garðurinn er afgirtur og skjólgóður með nýlegri hellulögn, fjölskrúðugum gróðri, grasflöt og palli við inngang. Svefnherbergið er á fyrstu hæðinni. Efsta hæðin er undir súð. Eldhúsið er ekki mjög stórt en ansi flott samt.
Fasteignamarkaður Reykjavík Tímamót Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira