Leyfa rússnesku íþróttafólki að keppa á ný Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júlí 2026 15:34 Alþjóða ólympíunefndin hefur opnað dyrnar á ný fyrir rússnesku íþróttafólki. getty/Richard Bord Alþjóða ólympíunefndin (IOC) hefur aflétt banni sínu á rússnesku ólympíunefndinni. Rússneskt íþróttafólk getur því keppt aftur á alþjóðlegum mótum, meðal annars á næstu Ólympíuleikum sem fara fram í Los Angeles 2028.
Framkvæmdastjórn Alþjóða ólympíunefndarinnar hefur ákveðið að aflétta með fyrirvara banni sem hefur verið í gildi síðan 2023. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um hvort Rússland megi nota fána sinn, fánaliti og þjóðsöng á Ólympíuleikunum. Nokkrir rússneskir íþróttamenn kepptu sem hlutlausir aðilar á Ólympíuleikunum í París 2024 og á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina fyrr á þessu ári. Alþjóða ólympíunefndin setti Rússland í bann í október 2023 vegna innrásarinnar í Úkraínu og fyrir vikið hefur rússneskt íþróttafólk ekki getað keppt á alþjóðlegum mótum síðustu árin. Þótt Alþjóða ólympíunefndin sé búin að aflétta banninu á Rússland mun IOC ekki halda neina viðburði þar í landi né bjóða rússneskum embættismönnum á viðburði á vegum nefndarinnar. Þá verður rússneskt íþróttafólk sem sækist eftir því að keppa á alþjóðlegum mótum að standast nokkur lyfjapróf og sýna sannan íþróttaanda, eins og kveðið er á um í Ólympíusáttmálanum, líkt og segir í yfirlýsingu IOC.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Ólympíuleikar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Sjá meira