Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 12:27 Lögregluþjónar við hús Sergei Skripal eftir að eitrað var fyrir honum. Taugaeitri var makað á hurðarhún hússins. Vísir/EPA Tæplega þriðjungshlutur í húsinu þar sem rússneskir útsendarar eitruðu fyrir Sergei Skripal árið 2018 er nú falur. Útsendararnir mökuðu taugaeitrinu novichok á hún útidyrahurðar hússins.
Skripal, fyrrverandi rússneskur leyniþjónustumaður sem bjó á Englandi eftir fangaskipti Bretlands og Rússlands, og dóttir hans veiktust heiftarlega þegar eitrað var fyrir þeim í bænum Salisbury árið 2018. Feðginin komust bæði lífs af en bresk kona sem komst í snertingu við leifar taugaeitursins sem rússnesku útsendararnir skildu eftir sig var ekki svo heppin. Nú hefur húsið sem Skripal bjó í verið sett á sölu. Sveitarfélagið á staðnum á meirihluta hússins en þrjátíu prósent hlutur í því selst fyrir 114 þúsund pund, jafnvirði rúmra nítján milljóna íslenskra króna. Breska blaðið The Guardian segir að sveitarfélagið hafi fest kaup á húsinu eftir tilræðið, meðal annars til þess að koma í veg fyrir að einhver breytti því í smekklausan ferðamannastað. Í fasteignaauglýsingunni er tekið fram að húsið hafi komið í sögu í eiturtilræðinu árið 2018. Húsið sé einnig nálægt skólum, verslunum og almannasamgöngum og því fylgi góður garður. Það sé prýðilegt hús fyrir fjölskyldur. Ekki fylgir sögunni hvort húsið sé nærri dómkirkjunni í Salisbury en hún er það sem rússnesku útsendararnir sögðu ríkisfjölmiðlum RT á sínum tíma að hefði verið ástæða örstuttrar heimsóknar þeirra til bæjarins. Bresk stjórnvöld telja að Vladímír Pútín, forseti Rússlands hafi persónulega gefið skipun um tilræðið við Skripal.
Taugaeitursárás í Bretlandi Bretland Rússland Fasteignamarkaður Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira