Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. júní 2026 14:02 Finnur Arnar er listamaðurinn á bak við nýtt Ölstofu-skilti. Juliette Rowland Í gær áttu sér stað söguleg skiltaskipti á Ölstofu Kormáks og Skjaldar við Vegamótastíg þegar 24 ára gamalt skilti Ragnars Kjartanssonar fékk að víkja fyrir splunkunýju frá listamanninum Finni Arnari.
Ragnar Kjartansson er með frægari listamönnum Íslendinga, fæddur árið 1976 og hefur meðal annars verið fulltrúi okkar á Feneyjartvíæringnum ásamt því að sýna verk sín víða um heiminn. Hann hannaði skiltið fyrir Ölstöfuna þegar hún opnaði árið 2002 og hefur það sett svip sinn á miðbæinn allar götur síðan. Verk Ragga Kjartans er verðmætt og sögulegt og komið á góðan stað inni á Ölstofu Kormáks og Skjaldar.Juliette Rowland „Það var farið að veðrast mikið þannig við færðum það inn til að varðaveita það,“ segir Hjálmar Forni Sveinbjörnsson Poulsen rekstrarstjóri Ölstofu Kormáks og Skjaldar en skiltið lifir áfram góðu lífi inni. Þá var að sjálfsögðu ekki hægt að skipta þessu sögulega listaverki út fyrir eitthvað óspennandi. Hið nýja uppi og hið gamla komið niður.Juliette Rowland „Okkur fannst auðvitað ekki vera hægt að setja upp skilti í staðinn sem væri prentað og límt á plötu þannig við fengum listamannin Finn Arnar til að hanna og búa til nýtt skilti og skapa þannig hefð að einn listamaður tekur við af öðrum. Gamla skiltið er náttúrulega orðið bara hluti af götumyndinni og svona ákveðið stolt Ölstofunar og því treystir maður ekkert hverjum sem er í að taka þetta að sér, en við erum virkilega ánægðir með útskomuna enda Finnur enginn venjulegur listamaður,“ bætir Hjálmar við. Hér er verið að vinna að því að koma nýja skiltinu fyrir í sól og blíðu um helgina.Juliette Rowland Finnur Arnar er fæddur árið 1965 og hefur samhliðað myndlist sinni starfað sem leikmyndahönnuður. Hann hefur komið víða við og sett um fjölmargar sýningar, var listrænn stjórnandi og rak Menningarhúsið Skúrinn og var með sýninguna Undraland: Verk í vinnslu í Ásmundarsafni fyrr á árinu. Nýja skiltið tekur sig vel út og fékk fullt hús stiga frá dyggustu viðskiptavinunum.Juliette Rowland Skiltið var svo afhjúpað klukkan fimm í gær við hátíðlega athöfn þar sem margmenni kom saman að fagna tímamótunum. „Nýja skiltið var samþykkt af okkar allra tryggustu viðskiptavinum með fullt hús stiga,“ segir Hjálmar brosandi að lokum.
Samkvæmislífið Reykjavík Myndlist Menning Veitingastaðir Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Sjá meira