Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 15. júní 2026 13:20 Skúli Bragi Geirdal er sviðsstjóri Netvís og varaþingmaður Framsóknarflokksins. Vísir/Vilhelm Bretar ætla að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla. Sviðstjóri Netvís vill að sambærilegar reglur verði settar hér á landi sem fyrst.
Bretar ætla að fylgja í fótspor Ástrala sem voru fyrstir til að fara þessa leið. Ef áform breskra stjórnvalda ganga eftir mun bannið taka gildi næsta vor. Hér á Íslandi hafa þessi mál nokkuð verið rædd. Skúli Geirdal, sviðsstjóri Netvís og varaþingmaður Framsóknarflokksins, lagði til að mynda fram þingsályktunartillögu síðasta haust þess efnis aldurstakmark á samfélagsmiðlum verði hækkað á Íslandi. „Mér finnst eðlilegt að við horfum á þá miðla þar sem börn komast í efni sem er ekki viðeigandi fyrir þann aldur sem þau eru. Það er hægt að horfa á þetta svipað og sjónvarpsáhorf. Við bönnum kannski ekki beint sjónvarpsáhorf en við reynum að takmarka markaðssetningu auglýsinga og við aldursmerkjum efni.“ Stofnaður var sérstakur spretthópur mennta- og barnamálaráðuneytisins um aldurstakmark á samfélagsmiðlum í vetur og fer Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, fyrir honum. „Þá erum við að vonast til þess að spretthópurinn geti skilað af sér þessari vinnu núna í sumar. Hvenær þetta kemur síðan inn á þing fer svolítið eftir ráðherra en hún leggur rosalega mikla áherslu á að þetta klárist fljótt.“ Málið sé nokkuð umfangsmikið. „Við höfum verið í rosalega góðum samskiptum við öll ráðuneytin, við höfum verið í góðum samskiptum við Norðurlöndin. Það þarf svolítið að vanda til verka þegar kemur að svona lagasetningu og ég hef bara séð rosalega vandaða vinnu og ég, eins og ég segi, vonast bara til þess eins og ráðherra að þetta komist eins fljótt og hægt er inn á þing.“ Skúli segir Íslendinga vera að bregaðst of hægt við og vill sjá breytingar sem fyrst. „Að þetta yrði ekki endalaust flækt inn í einhverja vinnuhópa heldur að við myndum fara að sjá aðgerðir á Íslandi bara sem fyrst af því að þegar við förum að horfa á þetta umhverfi þá er þetta augljóst. Við erum í rauninni að halda áfram að horfa upp á alls konar skaðleg áhrif samfélagsmiðla á börn og ungmenni á meðan við erum ekki að bregðast við.“ Ein leiðin sem hægt sé að fara er svipuð og gert var með útivistartíma barna. „Við getum gert eitthvað og það væri hægt að fara leið eins og að horfa á bara leiðbeinandi löggjöf þar sem við erum með eins og útivistartíma þar sem við stöndum með foreldrum og segjum, þetta er ekki viðeigandi aldurstakmark. Við ætlum að meta það út frá þeim forsendum sem eru inni á þessum veitum og standa þá saman að vernd barna á samfélagsmiðlum.“
Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Alþingi Ofbeldi gegn börnum Símanotkun barna Tengdar fréttir Lagt til að aldurstakmark á samfélagsmiðlum verði hækkað á Íslandi Lagt er til að aldurstakmark á samfélagsmiðlum verði hækkað í þingsályktunartillögu sem Framsóknarmenn ætla að mæla fyrir á Alþingi á næstunni. Reglur miðlanna taka á engan hátt mið af því hversu skaðlegt efnið getur verið börnum, segir varaþingmaður Framsóknar og sviðsstjóri hjá Netvís. 17. nóvember 2025 13:07 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira
Lagt til að aldurstakmark á samfélagsmiðlum verði hækkað á Íslandi Lagt er til að aldurstakmark á samfélagsmiðlum verði hækkað í þingsályktunartillögu sem Framsóknarmenn ætla að mæla fyrir á Alþingi á næstunni. Reglur miðlanna taka á engan hátt mið af því hversu skaðlegt efnið getur verið börnum, segir varaþingmaður Framsóknar og sviðsstjóri hjá Netvís. 17. nóvember 2025 13:07