Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Eiður Þór Árnason skrifar 13. júní 2026 20:58 Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Vísir/anton brink Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja það vekja furðu að lögreglan hafi ráðist í aðgerðir á skemmtistöðum á háannatíma sem leiddu til þess að þremur stöðum var lokað síðustu nótt. Samtökin geri ekki athugasemdir við sakargiftirnar en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum, að sögn lögreglu.
Greint var frá því að hún hafi farið inn á staði í Reykjavík og Hafnarfirði í nótt til að kanna stöðu rekstrarleyfa og starfsleyfa öryggisfyrirtækis sem sá þar um dyravörslu. Í ljós hafi komið að starfsleyfin væru ekki til staðar og stöðunum lokað. Á einum staðanna beindust aðgerðir að hugsanlegu skattlagabroti og var honum lokað í samstarfi við skattayfirvöld, að sögn lögreglu. Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, segist almennt gera athugasemdir við tímasetningar aðgerða lögreglu. „Lögreglan sem almennt talar um manneklu hefur tíma til að fara inn á þessa staði á föstudagskvöldi þegar staðirnir eru í fullri starfsemi og mikið álag. Þetta eru algerlega galnar aðstæður til að setja eigendur og starfsfólk í, svo ekki sé nú minnst á lögreglumennina sjálfa, að vera að takast á við þetta innan um ölvaða gesti miðborgarinnar. Þetta er uppskrift að mjög vondum kokteil,“ segir hann í skriflegri yfirlýsingu. Í samtali við fréttastofu segist hann ekki hafa rætt við eigendur staðanna sem lokað var í nótt og sá sem hann þekki til sé ekki aðili að samtökunum. Vandinn sé víðtækari þar sem fleiri veitingamenn hafi lent í því að fá umfangsmiklar heimsóknir frá lögreglunni fyrir framan viðskiptavini á óheppilegum tíma þegar leysa hefði mátt málið með öðrum hætti. Slíkar aðgerðir geti haft neikvæð áhrif á orðspor staða, jafnvel þótt eigendur hafi ekkert sér til saka unnið, og haft neikvæð áhrif á rekstur þeirra. Eðlilegra og gagnlegra væri fyrir lögregluna að ráðast í slíkar aðgerðir á dagvinnutíma þegar eigendur og stjórnendur eru líklegri til að vera á staðnum og geta svarað fyrirspurnum, að sögn Einars. Orðið þreytandi „Ég er ekki að draga í efa erindi lögreglunnar til þess að loka þessum stöðum eða taka skurk í þessum málum. Það sem þreytir okkur ofboðslega eru alltaf tímasetningarnar á aðgerðunum.“ „Þetta hefur líka verið gert við veitingamenn sem eru að selja mat ef menn telja eitthvað óuppgert þar. Þá hafa menn farið inn í hádeginu, jafnvel þegar veitingastaðurinn er fullsetinn. Það eru allir búnir að panta sér mat, maturinn annað hvort á eldavélunum eða nýkominn á borðið. Þá fer lögreglan inn í fullum skrúða, lokar stöðunum og leiðir fólk út í lögreglufylgd. Enginn borgar fyrir matinn sem er náttúrulega allur ónýtur.“ Eigendurnir séu jafnvel ekki á staðnum og vaktstjórar beðnir um að sýna starfs- og vínveitingaleyfi sem yfirvöld eigi að geta flett upp í eigin kerfum án aðkomu veitingamanna. Einar Bárðarson segir fyrirkomulag lögreglunnar engum til gagns.Vísir/Vilhelm Einar sér ekki hvers vegna lögreglan getur ekki frekar mætt fyrr um morguninn þegar minna er um að vera. „Þetta er engum til gagns. Lúkning málsins er alls ekki tryggð með þessum aðgerðum.“ „Það er búin að vera einhver svona rassía í gangi þannig að staðir með fullgild leyfi og annað hafa þurft að þola svona heimsóknir um hánótt og allt sett í uppnám. Ef eigandinn er ekki kominn niður eftir á núll einni til að gera grein fyrir því hvernig staðan er þá er hótað að loka og svo framvegis og svo framvegis. Hlutir sem er alveg hægt að afgreiða á öðrum tíma.“ Dyraverðirnir breyti engu Þrátt fyrir að lögregla hafi í tilfelli skemmtistaðanna sem lokað var í nótt verið að kanna starfsleyfi dyravarða sem eru síður við störf á daginn telur Einar ekki ástæðu til þess að ráðast í aðgerðirnar á þessum tíma. Fulltrúar lögreglunnar hafi getað mætt fyrr og athugað hvaða dyraverðir væru væntanlegir um kvöldið og hvort þeir væru með tilskilin leyfi. „Það á enginn að starfa í leyfisleysi og það á ekki að vera neinn vafi á því að menn hafi bæði fullt leyfi til þess að starfa og treysti því að undirverktakarnir þeirra séu líka í fullu leyfi,“ ítrekar Einar. Samt sé hægt að gera hlutina öðruvísi. Lögreglan sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að um tíu til fimmtán manns hafi verið inni á einum staðnum sem lokað var í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Þeim hafi verið vísað út og engin vandkvæði komið upp í aðgerðunum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Veitingastaðir Lögreglumál Reykjavík Hafnarfjörður Næturlíf Tengdar fréttir Lokað vegna skorts á starfsleyfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. 13. júní 2026 14:40 Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Þremur skemmtistöðum var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins í gærkvöldi og í nótt. Staðirnir eru í Hafnarfirði og í Reykjavík en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum. 13. júní 2026 07:46 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira
Lokað vegna skorts á starfsleyfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. 13. júní 2026 14:40
Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Þremur skemmtistöðum var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar og Skattsins í gærkvöldi og í nótt. Staðirnir eru í Hafnarfirði og í Reykjavík en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum. 13. júní 2026 07:46