Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 12. júní 2026 23:01 Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, svekktur eftir tap í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum í kvöld. Vísir/Anton „Mjög sárt. Við dettum út gegn liði sem er óhætt að segja að sé sterkasta lið landsins í dag,“ sagði Lárus Orri, þjálfari ÍA, svekktur eftir tap í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Víkingum.
Lárus Orri var sáttur með fyrri hálfleikinn að mörgu leyti, þrátt fyrir markaleysið.„Í fyrri hálfleik gekk ansi vel hjá okkur að stoppa þá, þeir fengu ekki mörg tækifæri í fyrri hálfleik. Það gekk illa upp hjá okkur að byggja upp sóknir í fyrri hálfleik að mér fannst.“Í hálfleik tók Lárus Orri Guðmund Þórarinsson, miðjumann, af velli og setti í hans stað Viktor Jónsson, framherja, inn á. Eftir á að hyggja telur Lárus Orri þá skiptingu hafa verið of snemmbúna.„Við gerðum smá breytingar í hálfleik sem opnaði leikinn helst til of mikið, sennilega var sú breyting gerð of snemma en Víkingarnir eru mjög klókir,“ sagði Lárus Orri og sneri sér þá að klókindum Víkinga og skaut á upplegg Víkinga.„Þeir eru ekki bara með gríðarlega vel mannað lið og flotta fótboltamenn, heldur eru þeir harðir. Þeir taka vel á því, sem er gott. Flott þegar menn taka á því. Við ætluðum að standa upp á móti þeim og taka á móti þeim á móti en þá eru þeir mjög klókir í sínum aðgerðum og breytast úr Víkingum og í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl. Það er mjög erfitt að eiga við þá. Þeir eru mjög sjóaðir í sínum aðgerðum og eru náttúrulega á toppnum allan þennan tíma og það er engin tilviljun, þeir eru mjög góðir.“Markmið Skagamanna á þessu tímabili var að vinna bikarinn að sögn Lárusar Orra, en hvert er þá framhaldið?„Við höldum áfram þessari uppbyggingu sem er hérna upp á Skaga. Við höfum komið langa leið á stuttum tíma. Við erum eins og fólk sér með gott lið. Hlutirnir eru að færast í rétta átt hjá okkur. Við erum að stefna á þann stað sem Víkingarnir eru í dag en við erum ekki alveg komnir þangað en munum enda þar.“
ÍA Mjólkurbikar karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira