„Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 19:30 Mikel Arteta er mættur með meistara Arsenal á toppinn. Getty/Robbie Jay Barratt „Mér finnst frábært að ná einhverju sem við höfum ekki gert í mörg ár,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir fyrsta sigurinn í deildarleik gegn Liverpool á Anfield í fjórtán ár. Hann var fullur stolts eftir 1-0 sigurinn í dag.
Kai Havertz skoraði sigurmarkið eftir korters leik og Arsenal-vörnin sem verið hefur svo áreiðanleg í haust stóð af sér storminn það sem eftir lifði leiks. „Ég er ákaflega stoltur. Það eru liðin 14 ár, það er langur tími. Ég er viss um að við gerðum alla sem tengjast félaginu ákaflega stolta í dag. Ekki aðeins vegna sigursins heldur vegna þess hvernig við fórum að því, vegna baráttuandans sem við sýndum. Sérstaklega í ljósi þess sem gerðist fyrir fjórum dögum þegar maður tapar og dettur úr bikarnum gegn liði sem maður á að vinna. Þetta eru töfrarnir við þessa íþrótt, hún getur farið með mann á mjög slæma staði en fjórum dögum síðar fær maður tækifæri til að gera eitthvað virkilega sögulegt og við gerðum það,“ sagði Arteta og var ekkert búinn að gleyma tapinu óvænta gegn Fleetwood Town í deildabikarnum. „Ég held að við verðum að hrósa leikmönnunum fyrir stöðurnar og færin í dag sem við nýttum ekki. Á heildina litið, að vinna lið sem er að skila því sem það er að skila, og það í því tilfinningalega ástandi sem við vorum í eftir Fleetwood, það er það sem sigurlið á að gera,“ sagði Arteta. Hann var spurður út í atvikið þegar togað var í treyju Alexanders Isak innan vítateigs án þess að vítaspyrna væri dæmd: „Nei, ég hef ekki séð það,“ sagði Arteta. Hann vildi heldur ekki gera of mikið úr stöðu Arsenal nú þegar liðið er með þriggja stiga forskot á Manchester City á toppnum. „Það er of snemmt í dag [að tala um titilbaráttu]. Njótum þessa ótrúlega sigurs með leikmönnunum og starfsfólkinu og á morgun byrjum við að undirbúa okkur fyrir annað stórt, stórt kvöld í Prag. Ég er ákaflega stoltur; þetta er eitthvað sem maður vill afreka. Það er áskorunin og verkefnið sem maður vill leysa. Mér finnst frábært að ná einhverju sem við höfum ekki gert í mörg ár. Það sama átti við um útileikina gegn Chelsea og Manchester United. Að geta unnið öll þessi lið, það er tilgangurinn og hvatinn og ástæðan fyrir því að við gerum það sem við gerum,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira