Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Birgir Olgeirsson skrifa 11. júní 2026 21:43 Bryndís Haraldsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Ívar Fannar Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á að ríkisstjórnin endurreikni fjármálaáætlunina þar sem forsendur hennar séu brostnar. Starfsáætlun þingsins var kippt úr sambandi í dag þar sem enn á eftir að ljúka stórum málum.
Til stóð að ljúka þinginu á morgun en áætluninni var kippt úr sambandi. Enn á eftir að afgreiða stór mál líkt og samgönguáætlun, fjármálaáætlun og stofnun innviðafélags. „Það er ljóst að það þarf að breyta starfsáætluninni því við verðum að halda hérna eitthvað áfram því það eru ennþá þessi óleystu mál og nokkur enn til. Þannig að það væri aldrei hægt að ljúka þessu á morgun,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir þingstörfin hafa gengið vel í vetur. „Við erum að verða búin að klára langflest af okkar þingmálum. Það er alltaf svona klassískur endasprettur núna í gangi og góð samtöl milli þingflokksformanna varðandi þessa daga sem eru fram undan. Þingið ætti að vera að klárast samkvæmt starfsáætlun á morgun en alvanalegt er að fara nokkra daga fram yfir en við erum bara björt og brosandi að þetta muni klárast á næstu dögum,“ segir hann. Það hafi gengið ágætlega að semja um næstu mál. Síðustu dagar hafi farið í fundarhöld til að ákveða hvaða málum sé raunhæft að ljúka fyrir sumarhléið. Evrópusambandið og fjármálaáætlun á tveimur vikum Bryndís segir að enn eigi eftir að ljúka stórum málum, þar á meðal fjármálaáætlun, en forsendur hennar séu brostnar. „Við höfum farið fram á það að ríkisstjórnin endurreikni fjármálaáætlunina. Við höfum nú óskað eftir því að koma hér saman í aðdraganda kosninganna um Evrópusambandið og þá gæti farið ágætlega á því að við tækjum eina til tvær vikur í ágúst og ræddum um Evrópusambandið og þá þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram undan er,“ segir hún. „Þá væri hægt að klára fjármálaáætlun og gefa ríkisstjórninni tækifæri til að uppreikna hana því við erum auðvitað að horfa upp á atvinnuleysi, minni hagvöxt og meiri kostnað. Það er augljóst að ríkisstjórnin þarf að bregða við.“ Í svörum sínum slær Guðmundur Ingi á létta strengi. „Ef við værum ekki nálægt því að ná fram samningum myndi ég núna tala um það að við værum að leggja fram fyrstu hallalausu fjárlögin í tíu ár og við værum að fara að bora fyrstu göngin í fyrstu ár en ég ætla að bíða með þessa ræðu þangað til við erum búin með þinglokasamninginn og við getum byrjað að karpa aftur eftir það,“ segir hann og uppsker hlátur frá Bryndísi. Það verði að koma í ljós á næstu dögum hvenær þingið fer í hlé.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira