Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Smári Jökull Jónsson skrifar 3. júní 2026 06:50 Bandaríkjamenn gerðu árásir á Qeshm eyju í Hormússundi í nótt. Vísir/Getty Bandaríkjamenn gerðu árásir á eyjuna Qeshm í Hormússundi í nótt en samkvæmt CNN er um að ræða einar umfangsmestu aðgerðir í deilu Bandaríkjanna og Íran síðan samið var um vopnahlé. Þá segja heimildamenn að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hafi rifist harkalega í síma í fyrrakvöld.
Vart var við sprengingar á Qeshm eyju í Hormússundi seint í gærkvöldi en þá höfðu Bandaríkjamenn skotið Hellfire eldflaug að olíuskipi sem var á leið til hafnar á Kharg eyju í Íran. Bandaríski herinn hefur lokað höfnum Írana og í tilkynningu hersins segir að olíuskipið hafi ekki farið að fyrirmælum um lokunina. Íranir svöruðu með því að skjóta eldflaugum að líbönsku skipi og eftir árásir Bandaríkjamanna á Qeshm eyju, sem CNN segja þær stærstu síðan samið var um vopnahlé, sendu Íranir eldflaugar og dróna til Kúveit og Barein þar sem bandarískar herstöðvar eru staðsettar. Samkvæmt yfirvöldum í Kúveit urðu skemmdir á alþjóðaflugvelli landsins sem opnaði á ný á mánudag eftir að hafa orðið fyrir skemmdum í árásum Írana í febrúar. Árásirnar í nótt og síðustu daga hafa verið gerðar þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi á milli deiluaðila og það er nú sagt hanga á bláþræði. Samkvæmt írönskum fjölmiðlum eru þó í gangi viðræður á milli ráðamanna í Tehran og Washington en í gær bárust fregnir af því að Íranir hefðu gert hlé á samningaviðræðum. Brjálaðist í símtali Þá ræddu þeir Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, saman í síma í fyrrakvöld. Þar á Netanyahu að hafa tilkynnt Trump að ísraelski herinn myndi halda áfram árásum sínum á suðurhluta Líbanon en fyrr í gær hafði Trump tilkynnt að Ísraelar myndu ekki gera árásir á Beirút, höfuðborg Líbanon, eftir hótanir Netanyahu þar að lútandi. Það varð til þess að Íranir hótuðu að hætta friðarviðræðum. Samkvæmt heimildamönnum fréttastofu ABC á Trump að hafa orðið verulega ósáttur við Netanyahu í símtalinu, sagði hann vanþakklátan og að Trump hefði komið ísraelska forsætisráðherranum undan fangelsisvist. Stríðið í Íran hefur verið afar óvinsælt í Bandaríkjunum allt frá upphafi og ekki síst eftir árangurslausar friðarviðræður síðustu vikna.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Kúveit Barein Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira