Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. júní 2026 15:45 Sturla Þór Björnsson og Rebekka Halldórsdóttir eru nú í fríi á Möltu. Íslensk hjón í ferðalagi á Möltu voru steinsofandi í um kílómetra fjarlægð frá flugeldaverksmiðju sem sprakk í loft upp með látum á Möltu í gærmorgun. Þau segja tíma hafa tekið að átta sig á hvað væri um að vera, þau hafi óttast það versta þegar þau vöknuðu. „
Við vorum steinsofandi og ég vaknaði við þessi svaka læti og húsið að hristast. Maður veit alveg hvernig jarðskjálfti er og þetta var ekki þannig,“ segir Rebekka Halldórsdóttir sem stödd er á Möltu í fríi ásamt eiginmanni sínum Sturlu Þór Böðvarssyni. Enginn lést í sprengingunni sen varð klukkan hálf sjö að morgni en tveir slösuðust. Myndband sem Sturla tók af svölunum. Hvernig tilfinning er það að finna fyrir svona sprengingu? „Hræðileg. Maðurinn minn hugsaði rökrétt en ég tapaði mér, ég hugsaði bara að það hlyti að vera komið stríð, að Pútín væri mættur og það fyrsta sem ég greip í var passinn og peningar, ég ætlaði bara út. Svo fór allt öryggiskerfið í gang til að vekja íbúa, þannig hávaðinn jókst við það. Svo sprungu rúður neðar í húsinu,“ segir Rebekka. Hjónin sem gistu á sjöundu hæð drifu sog út á svalir til að athuga hvað væri um að gera. Rebekka segir mikla mengun hafa lagst yfir borgina sem Rebekka líkir við drullu um leið og sprengingarinnar varð vart. „Við náttúrulega æðum út á götu eins og allir. Það voru allir að tala við okkur og spyrja, spyrja hvað hefði gerst.“ Á myndum og myndböndum lítur þetta svolítið út eins og kjarnorkusprengja? „Ég hugsaði það. „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Það er búið að vera mikið í gangi í höfðuborginni, margir að fagna og svona eftir kosningar og við héldum kannski að það væri hafin einhver uppreisn eða eitthvað.“ Rebekka segir að sprengingin hafi eðli málsins samkvæmt setið í þeim hjónum. Rakettur hafi ekki hætt að springa í verksmiðjunni fyrr en um miðjan dag. „Maður var bara allan daginn að ná sér og átti mjög erfitt með að fara að sofa. Um kvöldið hugsaði maður samt að það væri lán í óláni að allar raketturnar hefðu sprungið, þær gætu varla sprungið aftur annað kvöldið í röð, en þetta var mjög óþægilegt og maður þurfti að dreifa huganum.“
Malta Íslendingar erlendis Flugeldar Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira