Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Freyja Þórisdóttir skrifar 30. maí 2026 20:45 Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni en hún lætur af störfum eftir þetta skólaár eftir að hafa verið skólameistari FB síðastliðin 17 ár. Aðsend Benedikt Fazakerley Richardsson á tölvubraut var dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti nú á dögunum með einkunnina 9,83 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum. Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78 en þeir eru góðir vinir og kepptust um að vera með bestu meðaleinkunnina við útskrift.
Benedikt hafði ekki minnstu hugmynd um að honum hefði tekist að útskrifast með hæstu einkunn við skólann frá upphafi fyrr en í útskriftarathöfninni sjálfri. „Ég komst bara að því í athöfninni, kom alveg pínu á óvart,“ segir Benedikt blaðamanni en hann og vinur hans Erlendur stóðu uppi sem dúx og semídúx. „Semídúxin er mjög náinn vinur minn og þetta var bara svona vinsamleg keppni um hver yrði með hærri einkunn. Aldrei eitthvað þannig að við yrðum ekki áfram vinir en ég myndi segja að það hjálpi alveg að vera í smá keppni,“ segir Benedikt og bætir við að það myndi þurfa talsvert meira til að þeir slitu vinskapnum. Benedikt Fazakerley Richardsson fékk fyrst áhuga á forritun í grunnskóla.Aðsend Hann segist hafa stefnt á að dúxa og að þrátt fyrir einhverja erfiða áfanga hafi heilt yfir gengið ansi vel. Tölvuleikir uppspretta áhugans Benedikt fann fyrst fyrir áhuga á forritun í grunnskóla en var ekki beint staðráðinn í að fara í tölvunám. „Ég hafði eiginlega enga þekkingu á forritun en hef spilað slatta af tölvuleikjum í gegnum tíðina og tók þátt í að gera lítinn tölvuleik með vinum mínum þegar ég var í grunnskóla. Þá svona komst ég að því hversu gaman þetta getur verið,“ segir Benedikt en hann stefnir á að hefja nám í tölvunarstærfræði, sem er kennd við Háskólann í Reykjavík, næsta haust. Hann keppti í mars árið 2025 í Forritunarkeppni framhaldsskólanna í Háskólanum í Reykjavík og lenti þar í þriðja sæti í svokallaðri Beta-deild en hann keppti ásamt vinum sínum Bjarka Frey Finnssyni og Pétri Óla Ágústssyni. Liðið hét því skemmtilega nafni Byte me. Verðlaunin ratað heim Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78 en hann var með húfu afa síns við útskriftina.Facebook/Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Erlendur, semídúx og góður vinur Benedikts, útskrifaðist sem fyrr segir með einkunnina 9,78 en hann var rétt eins og Benedikt á tölvubraut. Hann hlaut námsverðlaun og viðurkenningarskjal frá Rotaryklúbburinn Reykjavík Breiðholt. Í færslu skólans á Facebook segir að til verðlaunanna hafi verið stofnað í minningu Jóns Stefáns Rafnssonar, tannlæknis, eins af stofnfélögum klúbbsins, sem hafi fallið frá langt um aldur fram. En í færslunni er einnig sagt frá því að „sú fallega og skemmtilega tilviljun hafi komið í ljós að Erlendur Stefán væri barnabarn Jóns Stefáns sem verðlaunin voru stofnuð til minningar um og Erlendur var með húfu afa síns við útskrifina“. Þá hafði starfsfólks skólans enga vitneskju um fjölskyldutengslin fyrr en eftir útskriftarathöfnina þegar Erlendur og fjölskylda hans deildu þessu með skólastjórnendum. „Það megi því með sanni segja að verðlaunin hafi að þessu sinni ratað heim.“
Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Reykjavík Tímamót Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira