Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. maí 2026 06:45 Það er löngu orðið ljóst að það er lítið að marka yfirlýsingar Trump og stjórnvalda vestanhafs um gang viðræðna við Írani. Getty/Win McNamee Bandaríkjamenn gerðu frekari árásir á Íran í nótt, sem var svarað með árásum Írana á herstöð Bandaríkjanna í Kúvæt. Yfirvöld vestanhafs segja að um varnaraðgerðir hafi verið að ræða.
Samkvæmt embættismönnum innan bandaríska stjórnkerfisins voru fjórir drónar skotnir niður við Hormuz-sund og árás gerð á stjórnstöð í Bandar Abbas, þaðan sem til stóð að skjóta fimmta drónanum á loft. Tveimur klukkustundum síðar greindi íranski ríkismiðillinn IRIB að Íranir hefðu gert árás á herstöð Bandaríkjanna í Kúvæt í hefndarskyni. Miðillinn sagði einnig frá því að skotið hefði verið á fjögur skip sem freistuðu þess að sigla um Hormuz-sund. Stjórnvöld vestanhafs hafa ítrekað sagt síðustu daga, vikur og mánuði að samkomulag milli Bandaríkjanna og Íran sé allt að því í höfn. Enn virðist þó langt á milli aðila og í gær hótaði Trump enn og aftur frekari aðgerðum ef Íranir gæfu sig ekki. Þá hótaði hann því að „sprengja Óman í loft upp“ aðspurður um fréttir þess efnis að stjórnvöld í Íran og Óman vildu stjórna skipaumferð um Hormuz-sund og innheimta umferðartoll. Sagði forsetinn að sundið ætti að vera opið öllum og að ef stjórnvöld í Óman héldu sig ekki á teppinu myndu Bandaríkjamenn einfaldlega gera árásir á ríkið. Þess ber að geta að Óman er bandamaður Bandaríkjanna. Ísraelsmenn hafa haldið áfram árásum á skotmörk í Líbanon og hæft 550 skotmörk í vikunni, að sögn hersins. Íranir hafa sagt það forsendu vopnahlés að það gildi einnig um Líbanon.
Íran Bandaríkin Óman Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira