Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2026 09:33 Hafþór Júlíus Björnsson á frumsýningu myndarinnar Masters of the Universe fyrir rúmri viku. Getty/Brianna Bryson Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson hefur notað ólögleg, árangursaukandi lyf síðan hann var 19 ára gamall en tók þó tvisvar sinnum hlé til að geta gert konuna sína ólétta.
Þetta kemur fram í grein norska miðilsins VG en blaðamaður miðilsins er mættur til Las Vegas til að fylgjast með „Enhanced Games“, eða Steraleikunum eins og þeir hafa verið kallaðir, sem haldnir verða í fyrsta sinn í kvöld. Leikarnir eru hugarfóstur ástralska auðkýfingsins Aron D'Souza sem vildi halda íþróttakeppni þar sem engar reglur eru varðandi lyfjanotkun. Fær íþróttafólkið sem þar keppir ríkulega launað og í umfjöllun VG viðurkennir breski sundmaðurinn Ben Proud að það séu fyrst og fremst peningar sem hann sé á höttunum eftir. Fyrir „heimsmet“ (sem vitaskuld fæst ekki staðfest hjá alþjóða íþróttasamböndunum) fæst til að mynda 1 milljón dollara, eða um 123 milljónir króna. Í umfjöllun VG er einnig rætt við Hafþór Júlíus og tekið fram að þessi 37 ára Íslendingur, sem þekktur sé einnig fyrir leik sinn í Game of Thrones, hafi misnotað lyf frá 19 ára aldri. Hafþór mun svo hafa talið upp hvert efnið á fætur öðru sem hann hefur sprautað í líkama sinn. Tók pásu til að eignast tvö börn Hann er þá spurður hve lengi hann ætli að nota ólögleg efni, og hvort ekki verði erfitt bæði líkamlega og andlega að hætta í framtíðinni. „Á hvaða hátt? Ég á tvö börn. Það varð til þess að ég hef þegar hætt tvisvar. Þegar þú sprautar auka testósteróni í líkamann hættir náttúrulega testósterónið að virka. Þá lækkar sæðismagnið og það er erfitt að gera konuna þína ólétta. Þess vegna tók ég pásu,“ segir Hafþór við VG. Hafþór keppir í kraftlyftingum og stefnir á að lyfta heilum 515 kílóum í réttstöðulyftu í nótt. Hann er sannfærður um að Steraleikarnir muni bara verða stærri og meira áberandi í framtíðinni. „Ég er alveg viss um að Enhanced Games geta orðið stærri en Ólympíuleikarnir. Sjáðu bara hversu mikla fjölmiðlaathygli þetta fær á stuttum tíma, og ímyndaðu þér hvernig það gæti verið eftir 10-15 ár,“ segir Hafþór við VG. Óttast skilaboðin til ungs fólks Í grein VG er fyrrnefndur Proud spurður út í þau skilaboð sem Steraleikarnir senda ungu fólki, og hvort að hann hafi ekki áhyggjur af þeim. Hann viðurkennir að hafa vissulega áhyggjur af því. „En ég ver þetta ekki gagnvart ungu fólki. Í mínum eigin heimi er ég ekki að kynna þetta fyrir neinum þarna úti. Samt er þetta viðkvæmt, því þetta verður á internetinu og aðgengilegt öllum ókeypis. Þannig að já, það er erfitt að mótmæla því að þetta sé ekki frábær hlutur til að sýna yngra fólki,“ segir Proud sem er 31 árs gamall.
Steraleikarnir Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Sjá meira