Fengu ekki Baldur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. maí 2026 11:38 Herjólfur á siglingu við Klettsvík. Vísir/Vilhelm Vegna veður- og ölduspár fyrir helgina vara forsvarsmenn Herjólfs við því að aðstæður geti verið erfiðar með tilliti til siglinga til Landeyjahafnar.
Í tilkynningu á Facebook-síðu Herjólfs segir að allar ferðir séu enn á áætlun en ef þurfi að gera breytingar verða farþegar látnir vita. „Ljóst er þó að vindur hefur meiri áhrif á siglingagetu Herjólfs nú þegar hann siglir á annarri skrúfunni,“ segir í tilkynningunni. „Þetta getur leitt til þess að aflýsa þurfi ferðum með stuttum fyrirvara og hvetjum við því farþega okkar til að ferðast fyrr en seinna með okkur.“ Tekið er fram að óskað var eftir því að Baldur, sem alla jafna er siglt um Breiðafjörð, myndi aðstoða við siglingar milli lands og Vestmannaeyja um hvítasunnuhelgina. Því miður hafi ekki verið hægt að verða við beiðninni. Að koma fólki til og frá Vestmannaeyjum hefur gengið brösulega undanfarnar vikur. Fyrst um sinn gekk hægt að dýpka Landeyjahöfn og bilaði dýpkunarskipið. Því var Herjólfi siglt til Þorlákshafnar en þá bilaði önnur vélin í Herjólfi. Afleiðingarnar eru þær að skipið siglir mun hægar auk þess sem vindstyrkur hefur meiri áhrif á skipið. Þá kviknaði eldur í gagnaveri í Amsterdam sem hýsti bókunarkerfi Herjólfs sem lá niðri í um viku.
Vestmannaeyjar Samgöngumál Herjólfur Ferjan Baldur Landeyjahöfn Rangárþing eystra Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira