Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Lovísa Arnardóttir skrifar 20. maí 2026 15:01 Krakkarnir hafa fengið aðstoð frá skólanum, íbúum og ýmsum fyrirtækjum. Vísir/Vilhelm Nemendur við Seljaskóla í Breiðholti hafa í allan vetur unnið að því að undirbúa nýtt 56 metra vegglistaverk á vegg við skólann. Nemendur hafa svo, með aðstoð foreldra, skólans og ýmissa íbúa, málað vegginn í vikunni og stefna á að ljúka verkinu á morgun á sumarhátíð skólans.
Veggurinn er staðsettur við unglingadeild skólans og er verkefnið unnið af nemendum á unglingastigi. Verkefnið er samstarfsverkefni foreldrafélags skólans, nágranna skólans, götulistamannsins Árna Más Þ. Viðarssonar, og myndmenntakennara skólans, Margrétar Gyðu Jóhannsdóttur. „Þetta er samstarf fimm foreldrafélaga í Breiðholti, við höfum alltaf verið í góðu samstarfi,“ segir Sverrir Sigmundarson, formaður foreldrafélags Seljaskóla. Hann segir að ákveðið hafi verið að fara í verkefnið í kjölfar erfiðrar umræðu um Breiðholtið og Mjóddina í fyrra. Börnunum hafi sérstaklega leiðst umræðan og mörg þeirra tekið hana inn á sig. Hópurinn sem hefur málað vegginn síðustu daga. Vísir/Vilhelm Ákall frá ungmennaráði „Upp úr því kom ákall frá ungmennaráði Breiðholts, sem eru krakkarnir okkar í hverfinu, að kvarta undan því hvernig fullorðið fólk væri að tala um þau og umhverfi þeirra. Þau meðtaka neikvæða umfjöllun öðruvísi en fullorðnir og taka þetta inn á sig,“ segir hann og að þetta hafi verið vakning fyrir foreldrana. Foreldrafélögin í hverfinu hafi eftir það efnt til verkefnisins Bjart í Breiðholti eða Jákvætt Breiðholt þar sem markmiðið er að stuðla að því að talað sé jákvætt um hverfið, hversu stórt og fjölbreytt það er og þannig reyna að snúa þessari neikvæðu umfjöllun við. „Þetta verkefni er fyrsti áfanginn, við vorum líka með sameiginlegan fyrirlestur í Gerðubergi þar sem við ræddum stór og lítil verkefni sem eru í gangi í hverfinu. Það er alls konar spennandi í boði,“ segir hann og nefnir, sem dæmi, morgunkaffi fyrir foreldra og forráðamenn í Hólabrekkuskóla. Sverrir segir náið samstarf fimm foreldrafélaga í hverfinu. Vísir/Vilhelm Leið til að valdefla krakkana „Þetta eru margir litlir hlutir og dropinn holar steininn. Við réðumst í þetta verkefni, það hefur verið stórt vegglistaverk fyrir ofan Seljaskóla frá árinu 2012 og þetta var leið til að valdefla krakkana í unglingahópnum í Seljaskóla og gefa þeim tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfið sitt og hluti sem þau sjá á hverjum einasta degi.“ Hann segir það vel þekkt að úrvinnsla og úrbætur í nærumhverfi hafi mikil og bein áhrif á það að fólk vilji gera betur. „Að gefa krökkunum þetta vald til að geta haft áhrif sjálf, að þau séu virkir þátttakendur í að gera þetta betra. Við í foreldrafélaginu ýttum þessu úr vör, en það eru fleiri hluti af þessu stóra verkefni. Við erum í góðu samstarfi við skólann og undir handleiðslu Margrétar Gyðu Jóhannsdóttur myndlistarkennara. Árni Már hefur svo frætt krakkana um götumyndlist og margar mismunandi aðferðir við það,“ segir Sverrir og að það sé ánægjulegt að fá svo marga að verkefninu. Árni Már götulistamaður, Margrét Gyða myndmenntakennari og Siddý Erla sem einnig er kennari við skólann. Vísir/Vilhelm Mikil aðstoð frá íbúum „Við höfum líka fengið góðan stuðning frá fyrirtækjum varðandi efniskaup og nágrönnum við að skipuleggja fundi og verkstýra. Svo er málarameistari í hverfinu sem aðstoðaði við að undirbúa vegginn. Krakkarnir eru búnir að vera að teikna og gera stensla í allan vetur og þetta er uppskeran. Svo verður lokahöndin lögð á sumarhátíð á morgun á milli 12 og 14.“ Krakkarnir hafa unnið að því í allan vetur að ákveða hvað þau vilja setja á vegginn. Vísir/Vilhelm Nemendur hafa fengið kennslu í graffíti. Vísir/Vilhelm
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Reykjavík Grunnskólar Myndlist Styttur og útilistaverk Tengdar fréttir „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ „Nú er ég ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf, segja bless í bili, klára þetta alveg eða hætta við að hætta og klára mig endanlega. Þetta er ein leið til þess að lýsa síðustu vikum og mánuðum hjá ykkar bestu Portkörlum,“ segir Árni Már Þ. Viðarsson, stofnandi Gallerýs Ports, í tilefni af því að gallerýið lokar brátt dyrum sínum eftir tíu ára starfsemi. 27. mars 2026 15:08 Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
„Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ „Nú er ég ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf, segja bless í bili, klára þetta alveg eða hætta við að hætta og klára mig endanlega. Þetta er ein leið til þess að lýsa síðustu vikum og mánuðum hjá ykkar bestu Portkörlum,“ segir Árni Már Þ. Viðarsson, stofnandi Gallerýs Ports, í tilefni af því að gallerýið lokar brátt dyrum sínum eftir tíu ára starfsemi. 27. mars 2026 15:08
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið