Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sindri Sverrisson skrifar 9. maí 2026 22:27 Elísa Kristinsdóttir var glaðbeitt eftir frábært hlaup í dag þó að það kæmi í hlut Ikram Rharsalla að taka við kampavíninu. Samsett/Instagram Elísa Kristinsdóttir hélt í dag áfram að sýna hve framarlega hún er komin í utanvegahlaupum í heiminum þegar hún keppti í Transvulcania hlaupinu á Kanaríeyjum. Hún rétt missti þó af verðlaunum.
Elísa hafnaði í 4. sæti í keppni kvenna í 43,9 kílómetra hlaupinu sem fram fer í mikilli hæð. Keppendur voru ræstir af stað í 1.450 metra hæð og hlupu svo í um og yfir 2.000 metra hæð í 15 kílómetra en heildarhækkun í hlaupinu er heilir 1.800 metrar. Elísa kom í mark á 4:18:44 klukkutímum en hin spænska Ikram Rharsalla, sem varð í 8. sæti í 45 km hlaupi á HM í utanvegahlaupum í fyrra, fagnaði sigri á 4:12:53 tímum. Elísa var aðeins um mínútu frá silfrinu og ekki nema 48 sekúndum frá bronsi, langt á undan næstu keppendum. „Þetta var ógeðslega erfitt,“ sagði Elísa á Instagram-síðu sinni. „Mér leið eins og við værum endalaust að hækka og hækka. Að þetta væri bara aldrei búið. Það kom aldrei svona „rúllandi“ spölur þar sem maður gat aðeins andað. Þetta var bara upp og svo ellefu kílómetra niður sem ég var mjög spennt fyrir en ég var dauð eftir 5-6 kílómetra í niðurhlaupinu,“ sagði Elísa. View this post on Instagram A post shared by Elísa Kristinsdóttir (@elisakristins) Hún var í 2. sæti þegar sex kílómetrar voru eftir og í 3. sæti þar til að aðeins tveir kílómetrar voru eftir. Tíðar beygjur í lokin gerðu Elísu hins vegar erfitt fyrir. „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk og þá fer allt í skrúfuna. En allt í góðu, þetta var geggjað,“ sagði Elísa stolt. Þess má geta að gamla brautarmetið, sem sett var í fyrra, var 4:29:19 og Elísa var því langt undir þeim tíma líkt og fyrstu þrír keppendurnir.
Hlaup Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Landa Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Sjá meira