Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Lovísa Arnardóttir skrifar 7. maí 2026 14:42 (F.v.) Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins og Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirrita samninginn í höfuðstöðvum Rauða krossins. Aðsend Með fimmtíu milljóna styrk þriggja ráðuneyta til reksturs Hjálparsímans 1717 hefur tekist að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri Hjálparsímans til næstu tveggja ára. Tilkynnt var í dag um styrkveitinguna og að stórauka eigi fræðslu um stafrænt ofbeldi. Um fjögur símtöl berast á dag í Hjálparsímann frá fólki með sjálfsvígshugsanir. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í dag tveggja ára samning við Rauða krossinn á Íslandi um fjármögnun Hjálparsímans 1717. „Við fögnum þessum mikilvæga stuðningi sem gerir okkur kleift að mæta vaxandi þörf fyrir þjónustu Hjálparsímans af auknum krafti,“ segir Ingibjörg Elín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, sem ritaði undir samninginn fyrir hönd félagsins, í tilkynningu. Hún segir að með þessum samningi skapist fyrirsjáanleiki sem skipti lykilmáli þegar komi að því að efla og bæta þjónustuna. „Samtölin eru að þyngjast og fleiri hafa samband vegna sjálfsvígshugsana,“ segir Ingibjörg. „Einnig lýsa fleiri ungmenni áreitni og hótunum sem þau verða fyrir á netinu. Til að bregðast við þessu ætlum við að stórauka fræðslu til starfsfólks og sjálfboðaliða. Þannig færum við þeim enn betri verkfæri til að veita öllum sem leita til Hjálparsímans nauðsynlegan stuðning.“ Samfélagslegt öryggisnet Ráðherrarnir þrír leggja áherslu í tilkynningu á að Hjálparsíminn 1717 sé mikilvægur hluti af samfélagslegu öryggisneti. Með sameiginlegri aðkomu ráðuneytanna sé undirstrikað að sálfélagslegur stuðningur snertir mörg svið samfélagsins: heilbrigði, velferð, húsnæðisöryggi, börn, ungmenni og fjölskyldur. „Við erum afar þakklát Rauða krossinum fyrir að sinna þessari mikilvægu starfsemi. Ég veit af þessum aukna þunga í samtölunum. Það er áhyggjuefni. En á sama tíma er það ánægjuefni að fólk leiti sér hjálpar og að það treysti Hjálparsímanum fyrir erfiðleikum sínum og líðan,“ sagði Alma Möller eftir að hafa undirritað samninginn. Sjö þúsund símtöl á árinu Á síðasta ári bárust rúmlega 20 þúsund samtöl til Hjálparsímans. Það sem af er árinu 2026 hafa tæplega 7.000 samtöl borist þjónustunni. Þar af hafa 533 samtöl snúið að sjálfsvígshugsunum og 546 að ofbeldi. Í 66 tilvikum hefur þurft að hafa samband við 112 vegna alvarleika máls. Árið 2025 var 1.728 sinnum haft samband við 1717 vegna sjálfsvígshugsana sem er oftar en nokkru sinni áður. Í 229 tilvikum höfðu sjálfboðaliðar og starfsfólk 1717 samband við Neyðarlínuna og óskuðu eftir sjúkrabíl vegna alvarleika samtalanna. Hjálparsíminn 1717 er opinn allan sólarhringinn, bæði í síma og netspjalli. Þar veita sérþjálfaðir sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins virka hlustun, sálrænan stuðning og upplýsingar um úrræði sem standa fólki til boða. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Geðheilbrigði Kynbundið ofbeldi Ofbeldi gegn börnum Félagasamtök Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í dag tveggja ára samning við Rauða krossinn á Íslandi um fjármögnun Hjálparsímans 1717. „Við fögnum þessum mikilvæga stuðningi sem gerir okkur kleift að mæta vaxandi þörf fyrir þjónustu Hjálparsímans af auknum krafti,“ segir Ingibjörg Elín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, sem ritaði undir samninginn fyrir hönd félagsins, í tilkynningu. Hún segir að með þessum samningi skapist fyrirsjáanleiki sem skipti lykilmáli þegar komi að því að efla og bæta þjónustuna. „Samtölin eru að þyngjast og fleiri hafa samband vegna sjálfsvígshugsana,“ segir Ingibjörg. „Einnig lýsa fleiri ungmenni áreitni og hótunum sem þau verða fyrir á netinu. Til að bregðast við þessu ætlum við að stórauka fræðslu til starfsfólks og sjálfboðaliða. Þannig færum við þeim enn betri verkfæri til að veita öllum sem leita til Hjálparsímans nauðsynlegan stuðning.“ Samfélagslegt öryggisnet Ráðherrarnir þrír leggja áherslu í tilkynningu á að Hjálparsíminn 1717 sé mikilvægur hluti af samfélagslegu öryggisneti. Með sameiginlegri aðkomu ráðuneytanna sé undirstrikað að sálfélagslegur stuðningur snertir mörg svið samfélagsins: heilbrigði, velferð, húsnæðisöryggi, börn, ungmenni og fjölskyldur. „Við erum afar þakklát Rauða krossinum fyrir að sinna þessari mikilvægu starfsemi. Ég veit af þessum aukna þunga í samtölunum. Það er áhyggjuefni. En á sama tíma er það ánægjuefni að fólk leiti sér hjálpar og að það treysti Hjálparsímanum fyrir erfiðleikum sínum og líðan,“ sagði Alma Möller eftir að hafa undirritað samninginn. Sjö þúsund símtöl á árinu Á síðasta ári bárust rúmlega 20 þúsund samtöl til Hjálparsímans. Það sem af er árinu 2026 hafa tæplega 7.000 samtöl borist þjónustunni. Þar af hafa 533 samtöl snúið að sjálfsvígshugsunum og 546 að ofbeldi. Í 66 tilvikum hefur þurft að hafa samband við 112 vegna alvarleika máls. Árið 2025 var 1.728 sinnum haft samband við 1717 vegna sjálfsvígshugsana sem er oftar en nokkru sinni áður. Í 229 tilvikum höfðu sjálfboðaliðar og starfsfólk 1717 samband við Neyðarlínuna og óskuðu eftir sjúkrabíl vegna alvarleika samtalanna. Hjálparsíminn 1717 er opinn allan sólarhringinn, bæði í síma og netspjalli. Þar veita sérþjálfaðir sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins virka hlustun, sálrænan stuðning og upplýsingar um úrræði sem standa fólki til boða. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Geðheilbrigði Kynbundið ofbeldi Ofbeldi gegn börnum Félagasamtök Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira