Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Aron Guðmundsson skrifar 1. maí 2026 11:32 KR hefur farið frábærlega af stað í Bestu deildinni. Fyrirliðinn Aron Sigurðarson hefur farið fyrir liðinu með góðu fordæmi og er klár í stórleik gegn Val annað kvöld. Vísir/Anton Brink Aron Sigurðarson, fyrirliði og lykilmaður í liði KR, er gíraður fyrir Reykjavíkurslag gegn Val á Hlíðarenda í Bestu deildinni annað kvöld. Aron hefur, líkt og KR liðið í heild sinni, farið frábærlega af stað á tímabilinu. „
Þetta er fyrsti stórleikurinn hjá okkur á tímabilinu. Það er alltaf auka kitl sem fylgir því að spila við Val,“ segir Aron í samtali við Val Pál Eiríksson, íþróttafréttamann Sýnar Klippa: Aron Sig gíraður í stórleik gegn Val „Sérstaklega núna þegar bæði lið hafa byrjað deildina vel. Ég býst ekki við öðru en fullri stúku, undir flóðljósunum og eini leikurinn á þessum tíma. Bara geðveikt. Við erum spenntir og klárir í þetta.“ KR-ingar, eins og frægt er orðið, spila blússandi sóknarbolta og engin breyting verður þar á komandi inn í stórleik morgundagsins. „Þegar að flautan gellur þá hlaupum við á Val á hundrað kílómetra hraða. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessum leik.“ KR komið með tólf stig eftir fjóra leiki, fullt hús stiga á toppi deildarinnar og nú þegar komið með helming þeirra stiga sem liðið safnaði í allri deildarkeppninni fyrir skiptingu í fyrra (24). Munurinn á stemningunni innan liðsins sést. Það hlýtur að vera munur? „Auðvitað. Góðar frammistöður líka,“ svaraði Aron. „Við vitum hvað gerir okkur góða og þurfum að vera með það gegn Val. Valur er með frábært lið, hafa byrjað frábærlega. Við þurfum að mæta hundrað prósent, allir, ef við ætlum að fá eitthvað út úr þessum leik.“ Heill og ferskur Aron hefur verið með bestu leikmönnum Bestu deildarinnar í upphafi tímabils, skorað fimm mörk og gefið þrjár stoðsendingar. Hvað skýrir þessa frábæru byrjun hjá honum persónulega? „Stutta svarið er bara að ég er heill,“ svaraði Aron sem hefur glímt við sinn skerf af meiðslum frá því að hann gekk í raðir KR á sínum tíma. „Ég er bara í standi. Við erum að gera þetta aðeins öðruvísi núna. Þetta er ekki eins mikil geðveiki og áður. Ég kem ferskur inn í þetta mót. Við erum með betra lið, erum að spila betur, erum öruggari og vitum hvað við eigum að gera. Þetta helst allt í hendur.“ Viðtalið við Aron Sigurðarson í aðdraganda Reykjavíkurslags Vals og KR má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. Leikur Vals og KR á N1-vellinum á Hlíðarenda hefst klukkan korter yfir sjö annað kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla KR Valur Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira