Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. apríl 2026 14:17 Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar. Vísir/Ívar Fannar Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar vill ekki tjá sig um greiðslur sem hann hlaut frá Rúv fyrir að bregða á leik hjá Gísla Marteini. Hann segist vilja fara yfir málið og muni að því loknu líklega senda frá sér yfirlýsingu.
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins þar sem greint er frá því að Ríkisútvarpið hafi greitt Jóni fyrir að leika í innslagi í Vikunni með Gísla Marteini. Þar brá Jón sér í hlutverk dúettsins Plató ásamt kollega sínum í Tvíhöfða Sigurjóni Kjartanssyni og var ESB málið þar í algleymingi. Upplýsingarnar eru hafðar upp úr fundargerð stjórnar Ríkisútvarpsins frá 25. mars en Ingvar Smári Birgisson stjórnarmaður Ríkisútvarpsins lagði fram fyrirspurn um aðkomu Jóns að hlutverkinu. Sagði hann að Jón, þingmaður Viðreisnar og yfirlýstur stuðningsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið hafi í þættinum brugðið sér í hlutverk andstæðings aðildar að Evrópusambandinu og hafi skopstælt þann málstað. „Óskað er eftir upplýsingum um hvort Jón Gnarr hafi fengið greitt fyrir að koma fram í Vikunni með Gísla Marteini í umræddum þætti. Sömuleiðis er óskað eftir upplýsingum um hvernig útvarpsstjóri telji það samræmast hlutlægnisskyldum ríkisútvarpsins að þingmaður ríkisstjórnarinnar sé fenginn sem skemmtikraftur í vinsælu dagskrárefni í því skyni að flytja pólitísk skilaboð og hæðast að málstað pólitískra andstæðinga.“ View this post on Instagram A post shared by RÚV (@ruvgram) Skemmtiatriði séu ekki ritskoðuð Fram kemur í fundargerðinni að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hafi upplýst á fundinum að Jón Gnarr hafi eins og aðrir skemmtikraftar sem séu með skemmtiatriði í RÚV fengið greitt fyrir sína framkomu í þættinum. „Skemmtiatriði séu ekki ritskoðuð af RÚV. Sérstakt ákvæði sé í vinnureglum um fréttir og dagskrárefni um takmarkanir á þátttöku frambjóðenda til almennra kosninga í dagskrá RÚV og giltu þau ákvæði einnig um talsmenn mismunandi fylkinga ef um þjóðaratkvæðagreiðslu sé að ræða. Bar sé viðmiðunardagsetning sá dagur sem framboðsfrestur rennur út. Ekki hafi verið lagt endanlegt mat á það í tengslum við mögulega þjóðaratkvæðagreiðslu hverjir skuli teljast talsmenn tiltekinna fylkinga, slíkt verði gert þegar ákvörðun hefur verið tekin um þjóðaratkvæðagreiðsluna á Alþingi.“ Fram kemur að endingu í fundargerðinni að Ingvar hafi gagnrýnt svör útvarpsstjóra. Í kjölfarið hafi fylgt umræður. Jón hefur ekki orðið við beiðni Vísis um viðtal vegna málsins og segist ekki vilja gera slíkt fyrr en hann hafi náð að fara yfir málið. Þá muni hann líklega senda frá sér yfirlýsingu. Fundargerð Rúv má lesa hér. fundargerð_stjórnar_rúv_25PDF2.5MBSækja skjal
Ríkisútvarpið Viðreisn Kjaramál Fjölmiðlar Menning Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira