Stofnandi LIV segir skilið við mótaröðina Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. apríl 2026 13:01 Yasir Al-Rumayyan er meðstofnandi LIV og stjórnarformaður mótaraðarinnar. Warren Little/Getty Images Ríkissjóður Sádi-Arabíu mun hætta að fjármagna LIV mótaröðina og Yasir Al-Rumayyan, formaður ríkissjóðsins og stofnandi LIV, mun segja skilið við mótaröðina. Ný stjórn mun taka við því vonlitla verkefni að reyna að halda mótaröðinni áfram.
Hvíslað hefur verið um það síðustu tvær vikur að LIV mótaröðin muni láta niður laupana og hvíslið hefur sífellt orðið háværra. Stórir miðlar á við Wall Street Journal og The Athletic hafa nú slegið því föstu að fjármagnið frá ríkissjóði Sádi-Arabíu muni hætta að streyma bráðlega. Ríkissjóðurinn hefur sett meira en fimm milljarða dollara í LIV mótaröðina og tapað rúmum milljarði dollara, samkvæmt BBC. LIV mótaröðin hefur ekki staðfest tíðindin en fundur verður haldinn síðar í dag þar sem talið er að ný framtíðarsýn mótaraðarinnar verði kynnt. Þar er búist við því að LIV muni tilkynna um breytingar í stjórninni. Sagt er að stjórnarformaðurinn og stofnandinn, Yasir Al-Rumayyan, sem er einnig formaður ríkissjóðsins, muni hætta og taka með sér mest allt fjármagn í leiðinni. Samkvæmt heimildum The Athletic mun LIV mótaröðin tilkynna um nýja stjórn sem fær það verkefni að endurskipuleggja fjárhaginn. Talið er að það verði gert með því að selja lið til einkaaðila sem kæmu með fjármagn inn í mótaröðina. Þá vaknar óvissa um hvað verður um kylfingana á LIV mótaröðinni. Stór nöfn á borð við Jon Rahn, Cameron Smith og Bryson DeChambeau höfnuðu því að snúa aftur á PGA mótaröðina í febrúar. Þeir vilja kannski endurskoða þá ákvörðun en það er ekki víst að PGA bjóði þeim tækifærið aftur. Enn frekari óvissa er svo uppi um aðrar íþróttir sem ríkissjóður Sádi-Arabíu hefur fjárfest í síðustu ár. Fótbolti, hnefaleikar, Formúla 1 og tennis hafa notið vinsælda þar.
LIV-mótaröðin Golf Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppnum Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Féll í yfirlið í miðjum leik Eggert Þór komst í 8-liða úrslit Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram „Klappað fyrir manni þegar maður mætti“ Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Tékki til Njarðvíkur „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Sjá meira