Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. apríl 2026 14:48 Fólkið fannst látið á Edition hótelinu. Vísir/Anton Brink Frönsk kona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt dóttur sína á Edition-hótelinu í Reykjavík síðasta sumar. Eiginmaður konunnar fannst einnig látinn á hótelherberginu. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við fréttastofu. Farbann konunnar rann út í dag og var því tekið upp á ný nú eftir hádegi. Farbannið var framlengt á meðan málaferlar fara fram en líkt og kom fram var konan ákærð fyrir manndráp. Dóttir hjónanna var á þrítugsaldri. Samkvæmt les Nouvelles Calédoniennes, staðarmiðli frá Nýju-Kaledóníu, heitir konan Ming Ting Mancel og er 56 ára. Eiginmaðurinn hét Emeric Mancel, 58 ára, og dóttirin Catherine Mancel og var 29 ára. Þau bjuggu á Nýju-Kaledóníu þar til árið 2017 þegar þau fluttur til Nýja-Sjálands og síðan Írlands árið 2020. Rúv greinir frá að Ming Ting sé ákærð í málinu í samverknaði við Emeric. Karl Ingi staðfestir það sömuleiðis í samtali við fréttastofu. Þann 14. júní 2025 fundust frönsk feðgin látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur. Eiginkona og móðir hinna látnu játaði á vettvangi að hafa drepið þau, hefði svo ætlað að svipta sig lífi en ekki lokið við ætlunarverk sitt. Síðan þá hefur konan breytt afstöðu sinni og neitar sök. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með málið til rannsóknar og lauk henni þann 20. janúar. Héraðssaksóknari tók þá til skoðunar hvort tilefni væri til að gefa út ákæru á hendur Mancel. Málið var hins vegar aftur sent til lögreglu þann 24. febrúar, sem rannsakaði málið aftur þar til í lok mars. Vildi ekki að dóttirin yrði ein eftir Í fyrri úrskurð héraðsdóms var aðkomu á vettvangi málsins lýst. Umræddan dag hafði starfsfólk Edition samband við lögreglu þar sem að kona hefði fallið í sturtu á herbergi hótelsins. Síðar bárust lögreglunni þær upplýsingar að Ming Ting væri með stungusár á bringu eftir hníf og var sjálf vopnuð. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Á gólfinu lægi meðvitundalaus maður og búið væri að breiða yfir hann lak. Þegar lögreglumennirnir komu á Ming Ting að hafa setið á gólfinu og sagt lögreglunni að hún hefði drepið tvær manneskju. Við komu á sjúkrahús sagði konan við hjúkrunarfræðing, svo lögreglumaður heyrði til, að Emeric væri dauðvona og hún hefði ekki viljað að dóttir þeirra yrði ein eftir lifandi. Ming Ting sagði einnig að hún hefði ætlað að svipta sig lífi með því að stinga sig í hjartað. Fjölskyldan, sem er frönsk en bjó á Írlandi, ferðaðist saman til Íslands og átti það að vera þeirra síðasta samverustund. Fréttin hefur verið uppfærð. Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í samtali við fréttastofu. Farbann konunnar rann út í dag og var því tekið upp á ný nú eftir hádegi. Farbannið var framlengt á meðan málaferlar fara fram en líkt og kom fram var konan ákærð fyrir manndráp. Dóttir hjónanna var á þrítugsaldri. Samkvæmt les Nouvelles Calédoniennes, staðarmiðli frá Nýju-Kaledóníu, heitir konan Ming Ting Mancel og er 56 ára. Eiginmaðurinn hét Emeric Mancel, 58 ára, og dóttirin Catherine Mancel og var 29 ára. Þau bjuggu á Nýju-Kaledóníu þar til árið 2017 þegar þau fluttur til Nýja-Sjálands og síðan Írlands árið 2020. Rúv greinir frá að Ming Ting sé ákærð í málinu í samverknaði við Emeric. Karl Ingi staðfestir það sömuleiðis í samtali við fréttastofu. Þann 14. júní 2025 fundust frönsk feðgin látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur. Eiginkona og móðir hinna látnu játaði á vettvangi að hafa drepið þau, hefði svo ætlað að svipta sig lífi en ekki lokið við ætlunarverk sitt. Síðan þá hefur konan breytt afstöðu sinni og neitar sök. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með málið til rannsóknar og lauk henni þann 20. janúar. Héraðssaksóknari tók þá til skoðunar hvort tilefni væri til að gefa út ákæru á hendur Mancel. Málið var hins vegar aftur sent til lögreglu þann 24. febrúar, sem rannsakaði málið aftur þar til í lok mars. Vildi ekki að dóttirin yrði ein eftir Í fyrri úrskurð héraðsdóms var aðkomu á vettvangi málsins lýst. Umræddan dag hafði starfsfólk Edition samband við lögreglu þar sem að kona hefði fallið í sturtu á herbergi hótelsins. Síðar bárust lögreglunni þær upplýsingar að Ming Ting væri með stungusár á bringu eftir hníf og var sjálf vopnuð. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Á gólfinu lægi meðvitundalaus maður og búið væri að breiða yfir hann lak. Þegar lögreglumennirnir komu á Ming Ting að hafa setið á gólfinu og sagt lögreglunni að hún hefði drepið tvær manneskju. Við komu á sjúkrahús sagði konan við hjúkrunarfræðing, svo lögreglumaður heyrði til, að Emeric væri dauðvona og hún hefði ekki viljað að dóttir þeirra yrði ein eftir lifandi. Ming Ting sagði einnig að hún hefði ætlað að svipta sig lífi með því að stinga sig í hjartað. Fjölskyldan, sem er frönsk en bjó á Írlandi, ferðaðist saman til Íslands og átti það að vera þeirra síðasta samverustund. Fréttin hefur verið uppfærð.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira