Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir Þorsteinn Hjálmsson skrifar 24. apríl 2026 22:10 Arnór Snær Óskarsson skoraði tólf í sigri Vals í kvöld. Valur vann leik eitt gegn FH í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í kvöld. Lokatölur 37-33 í leik sem var hraður og spennandi en litaðist af stórum vendipunkti. FH hóf leikinn örlítið betur og náði yfirhöndinni í upphafi. Sóknarleikur Vals var ekki alveg að smella en um leið og FH-ingar, þá sérstaklega Birkir Benediktsson, byrjuðu að tapa boltanum eftir fína byrjun þá refsuðu Valsmenn um leið. Allt jafnt eftir um tólf mínútur, 5-5. Mikil barátta var í leiknum og sveiflaðist forystan nokkuð á milli liðanna fram að hálfleik, en aldrei skildi meira á milli liðanna en tvö mörk. Markvarslan var ekki sérstök í fyrri hálfleik en Björgvin Páll í marki Vals varði þrjá bolta á meðan Jón Þórarinn í marki FH varði fimm skot. Sóknarlega í fyrri hálfleiknum þá voru þeir Arnór Snær Óskarsson, skytta Vals, og Ómar Darri Sigurgeirsson, skytta FH, atkvæðamestir. Arnór Snær með sjö mörk á meðan Ómar Darri skoraði úr öllum sínum fimm skotum og var Björgvin Páll í allskonar vandræðum með föst skot stórskyttu FH. Staðan 16-16 í hálfleik og ekkert gefið eftir í N1-höllinni. Síðari hálfleikurinn var aðeins fjögurra mínútna gamall þegar vendipunktur leiksins kom. Jón Bjarni Ólafsson, línumaður og lykilmaður FH, fékk þá rautt spjald fyrir að toga Þorgils Jón, leikmann Vals, með sér í gólfið eftir árekstur þeirra tveggja þegar FH var að bruna upp í sókn. Dómarar leiksins fóru í VAR-sjánna og eftir nokkra stund komust þeir að þessari niðurstöðu. Í kjölfarið náði Valur undirtökunum í leiknum. Skoruðu þeir auðveld mörk á meðan FH brenndi af tveimur dauðafærum. Staðan 22-18 á 37. mínútu og tók FH þá leikhlé. FH-ingar reyndu hvað þeir gátu að saxa á forystu Vals og náðu henni mest niður í eitt mark þegar korter lifði leiks, 25-24. Mikil orka fór þó í þetta áhlaup og voru Valsmenn hvergi af baki dottnir. Fóru heimamenn afskaplega vel með forystu sína síðasta korterið og fjaraði leikurinn í raun út með algjöru markaflóði þar sem lítið var um varnir. Atvik leiksins Rauða spjaldið á Jón Bjarna var vendipunktur. Í sókn Vals rétt á undan höfðu Jón Bjarni og Þorgils Jón verið í mikilli baráttu og í raun slagsmálum. Lauk þeirri sókn með marki Vals og brunuðu FH-ingar upp í hraða miðju. Í hamaganginum skullu þessir tveir stríðsmenn liðanna saman með þeim afleiðingum að Jón Bjarni tekur Þorgils Jón með sér í gólfið. Erfitt er þó að segja hvort þetta allt saman hafi verðskuldað rautt spjald, en reyndist það dýrkeypt fyrir Hafnfirðinga að missa út einn sinn allra öflugasta leikmann. Stjörnur og skúrkar Á meðan Ómar Darri snöggkólnaði eftir frábæran fyrri hálfleik hjá FH-ingum þá hélt Arnór Snær sínu striki í leik Vals og endaði hann með tólf mörk. Þorgils Jón var þó maður leiksins að mínu mati. Hrikalega öflugur í vörn, með þrjú mörk og 100 prósent nýtingu og algjör stríðsmaður á vellinum og fór fyrir sínu liði í allri baráttu. Jón Bjarni mögulega klaufi að bjóða upp á þennan hamagang sem endaði með rauðu spjaldi. Hann mun sennilega seint sofna í kvöld, eftir að hafa skilið liðsfélaga sína eftir eftir þetta skrautlega atriði. Birkir Benediktsson var þó slakasti leikmaður leiksins. Í upphafi leiks lá við að betra væri fyrir FH að kasta boltanum upp í stúku heldur en á Birki, sem tapaði hverjum boltanum á fætur öðrum. Einnig er það leiðinlegt að horfa upp á jafn líkamlega vel á sig kominn handboltamann nýta sitt líkamlega atgervi jafn illa og Birkir gerði í þessum leik. Sjálfstraustið ekki mikið hjá Birki í kvöld. Dómarar Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson áttu ekkert frábæran dag í dag. Leikurinn var oft á tíðum lengi stopp en það má gefa þeim það að þess fyrir utan flæddi leikurinn vel þrátt fyrir pústra hér og þar. Stóra atvik leiksins er ég ekki svo viss um að hafi verið réttur dómur að lokum, sem vegur þungt í jafn stórum leik sem þessum. Stemning og umgjörð Valsmenn ávallt með flotta umgjörð. Góð mæting en ekki fullt hús, sem er svekkjandi þegar um úrslitareinvígi er að ræða hjá tveimur sigursælustu liðum landsins. Þeir sem mættu létu þó vel í sér heyra og þakkaði Björgvin Páll stuðningsmannasveit Vals, Strætóskýlinu, sérstaklega fyrir stuðningin eftir leik. Olís-deild karla Valur FH