Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Þórarinn Þórarinsson skrifar 17. apríl 2026 15:17 Séra Hildur Eir sendi Miðflokknum tóninn á Facebook í kjölfar ummæla Snorra Mássonar um regnbogafána í skólum. Biskupinn, Guðrún Karls Helgudóttir, segist sammála prestinum. Vísir/Samsett Biskup Íslands segist sammála Hildi Eir Bolladóttur, sóknarpresti í Akureyrarkirkju, sem biður Miðflokkinn vinsamlegast um að draga Þjóðkirkjuna ekki „inn í ömurlegan málflutning sinn“ um regnbogafána í grunnskólum. Hildur Eir segir regnbogafánana mega blakta sem víðast, líka við kirkjur.
Hildur Eir er meðal þeirra sem hafa brugðist við aðfinnslum Snorra Mássonar, varaformanns Miðflokksins, um að regnbogafáninn, sem orðinn sé að „veraldlegu trúartákni“, fái athugasemdalaust að blakta í grunnskólum. Óhætt er að segja að með orðum sínum hafi þingmaðurinn magnað upp reiðiöldu sem gengur ekki síst yfir Facebook þar sem Hildur Eir er í hópi þeirra sem hafa blandað sér í umræðuna. „Kirkjan hefur engan áhuga á því að koma inn í skólana á kostnað regnbogafána og hinsegin fræðslu þannig að ég ætla að biðja Miðflokkinn vinsamlegast um að draga ekki Þjóðkirkjuna inn í ömurlegan málflutning sinn og benda á hana sem einhvers konar jaðarsetta stofnun sem hún er ekki,“ segir Hildur Eir í stöðuuppfærslu í dag. Biskupinn yfir Íslandi, Guðrún Karls Helgudóttir, segist í samtali við Vísi geta tekið undir með Hildi Eir og hún sé henni sammála. Hildur Eir bendir einnig á að Þjóðkirkjan fái mikið rými í samfélaginu enda beri henni að þjóna öllu fólki. „Af öllum kynjum, allri kynhneigð, trúarbrögðum og þjóðernum. Þjóðkirkjan er amma og mamma allra sem til hennar leita,“ skrifar Hildur Eir. „Megi því sem flestir regnbogafánar blakta við hún við skóla og leikskóla og íþróttahús og kirkjur til að styðja við andlega heilsu þeirra barna og ungmenna sem eru að rannsaka eigin tilveru og líðan.“
Hinsegin Þjóðkirkjan Miðflokkurinn Skóla- og menntamál Alþingi Málefni trans fólks Börn og uppeldi Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira