Upp­gjör: Valur-Fram 26-24 | Ó­trú­leg endur­koma meistaranna í fyrsta leik

Valur - Fram undanúrslit kvenna í bikarnum HSÍ 2025
Valur - Fram undanúrslit kvenna í bikarnum HSÍ 2025

Valskonur lögðu Fram 26-24 í fyrsta leik liðanna um sæti í úrslitum Olís-deildar kvenna. Gestirnir höfðu forystu lengst af en Valskonur sýndu mikinn karakter í lokin og tryggðu sér sigur með frábærum lokakafla.

Fram byrjaði leikinn af krafti og náði snemma góðu forskoti. Þegar tíu mínútur voru liðnar var staðan orðin 1-6 fyrir gestina sem áttu mun betri byrjun í leiknum. 

Valskonur náðu þó að saxa á forskotið þegar leið á hálfleikinn og minnkuðu muninn í 9-11. Framarar gáfu hins vegar bara aftur í rétt fyrir hálfleik og héldu frumkvæðinu fram að hléi, þar sem staðan var 12-16 fyrir Fram.

Voru í góðri stöðu

Í seinni hálfleik héldu Framkonur forystunni framan af og staðan var 16-18 þegar um þrettán mínútur voru liðnar. Valskonur voru þó aldrei langt undan og gestirnir náðu ekki að nýta sér þau tækifæri sem gáfust til að slíta sig almennilega frá.

Um miðjan seinni hálfleikinn kom sterkur kafli hjá Valskonum sem skoruðu þrjú mörk í röð og minnkuðu muninn í 18-20 þegar tæplega korter var eftir.

Ótrúlegur endakafli

Gestirnir héldu forystunni lengi vel og var staðan 20-22 þegar fimm mínútur lifðu leiks. Valskonur gáfust þó ekki upp og jöfnuðu 22-22 þegar fjórar mínútur voru eftir. Í framhaldinu tóku Valskonur öll völd á vellinum og kláruðu leikinn af miklu öryggi. Þær skoruðu mikilvægustu mörkin í lokin og tryggðu sér 26-24 sigur eftir ótrúlega endurkomu, en þær höfðu verið undir nánast allan leikinn.

Valskonur eru því komnar með 1-0 forystu í einvíginu.

Atvik leiksins:

Lokamínútur leiksins hreppa þennan titil, rosalegur endasprettur hjá Valskonum!

Stjörnur:

Lovísa Thompson var með sex mörk í dag og átti mikilvægan part í endurkomunni í lok leiks. Þess vegna á hún stjörnustimpil kvöldsins skilið.

Stemning og umgjörð:

Það var vel mætt á leik kvöldsins, stuðningsmenn beggja liða létu sig sko ekki missa í þessum háspennuleik og sjá þeir eflaust ekki eftir að hafa mætt hér á Hlíðarenda

Dómarar:

Þeir Ramunas Mikalonis & Þorleifur Árni dæmdu vel í kvöld og leyfðu leiknum að flæða vel, þeir geta farið sáttir heim eftir gott dagsverk.

Anton Rúnarsson, þjálfari Vals.Vísir/Anton Brink

„Við vorum undir á mörgum sviðum í dag“

Það var allt undir í fyrsta leik einvígsins milli Vals og Fram í úrslitakeppni Olís deildar kvenna þar sem liðin keppast um laust sæti í úrslitaleik deildarinnar, Valur enduðu þó með yfirhöndina eftir leik kvöldsins, lokatölur 26-24 þeim rauðklæddu í vil.

„Hrikalega ánægður að hafa fengið sigur í dag, það leit ekki þannig út, við vorum undir á mörgum sviðum í dag. Undir í hálfleik og fjórum mörkum undir um miðjan seinnihálfleik, en þvílíkur karakter að koma til baka og klára þetta, það er ekki sjálfsagt,“ sagði Anton Rúnarsson, þjálfari Vals eftir sigur kvöldsins.

„Þetta er náttúrulega komið út í úrslitakeppni og þá er bara allt lagt í sölurnar, eins og reyndar alltaf. En þær (Fram) eru búnar að vera frábærar eins og gegn ÍR, unnu þær sannfærandi 2-0, en nú er úrslitakeppni og því allt undir,“ sagði Anton

1-0 forysta í svona úrslita einvígi er alltaf góð staða.

„Það er mjög mikilvægt, en þetta er samt langt frá því að vera búið. Það er bara að huga að næsta leik, við þurfum heldur betur að fara yfir marga hluti og munum við að sjálfsögðu gera það. Varnarleikurinn okkar var hikandi og sóknarleikurinn líka, þetta helst allt saman í hendur,“ sagði Anton.

Vilhelm Gunnarsson

„Við þurfum að klára 60 mínútur til að vinna Val“

„Svekkjandi, við spiluðum vel í 52-53 mínútur í leiknum en sóknin okkar datt niður í lokin,“ sagði Haraldur Þorvarðarson, þjálfari kvennaliðs Fram, eftir 26-24 tapleik gegn Val þar sem úrslitin réðust á síðustu mínútum.

„Við vorum kannski orðnar þreyttar eða hvað það var en við áttum að sækja almennilegra á markið og tókum kannski vitlausa sénsa, það hefur farið með þetta.“

Gestirnir stóðu í heimakonum í kvöld þar sem þær leiddu forystuna í yfir 50 mínútur, en lokaspretturinn reyndist gestunum erfiður.

„Síðustu tveir leikir gegn Val hafa verið góðir mestmegnis. Hhann var mjög góður í dag á löngum stundum, en ekki nógu góður, við þurfum að klára 60 mínútur til að vinna Val,“ sagði Haraldur.

Valskonur eru því komnar í 1-0 forystu í einvíginu um sæti í úrslitaleik Olís deildar kvenna.

„Sóknarleikurinn datt niður undir lokin, það munum við rýna í og skoða hvað það var, aðeins að skerpa á þeim hlutum,“ sagði Haraldur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira