Upp­gjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Kefla­vík tryggði sér odda­leik

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Remy Martin var frábær í sigri Keflavíkur í kvöld.
Remy Martin var frábær í sigri Keflavíkur í kvöld. Vísir/Paweł

Keflvíkingar tryggðu sér oddaleik í baráttunni um sæti í undanúrslitum eftir sjö stiga sigur á Val í kvöld, 88-81, í fjórða leik liðanna í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta.

Valsmenn voru búnir að vinna tvo leiki í röð í einvíginu, þar af ótrúlegan sigur á lokaskoti leiksins í síðasta leik. Nú hafa bæði lið unnið á heimavelli og bæði lið unnið á útivelli en úrslitin ráðast um helgina á Hlíðarenda.

Keflvíkingar náðu að svara vel fyrir afar svekkjandi tap í leiknum á undan með Remy Martin í fararbroddi en hann skoraði 27 stig í kvöld.

Keflavík var 28-22 yfir eftir fyrsta leikhlutann og Valsmenn náðu aldrei að vinna þann mun upp.

Leikurinn fór kröftuglega af stað fyrir heimamenn sem byrjuðu strax að safna stigum á töfluna. Það var mikill andi í húsinu og það var alveg ljóst frá uppkasti að þetta ætti eftir að gefa Keflvíkingum mikið fyrir baráttuna sem var framundan.

Keflavík var að setja góð skot á meðan sömu skotin voru ekki endilega að falla fyrir Valsmenn fyrst um sinn. Heimamenn enduðu fyrsta leikhluta með sex stiga forystu 28-22.

Annar leikhluti var ekki alveg jafn fjörugur og sá fyrsti en baráttan var sú sama ef ekki meiri. Það komst smá hiti í leikana sem gerði þetta bara enn skemmtilegra fyrir vikið.

Valsmenn náðu að jafna leikinn eftir rúmlega miðbik leikhlutans en Keflavík tók þá leikhlé og náði góðum tökum á leiknum aftur sem þeir héldu út leikhlutann og fóru með átta stiga forskot inn í hálfleikinn 47-39.

Mikil barátta einkenndi þriðja leikhlutann og sóknarleikurinn varð svolítið undir í mikilli baráttu úti á velli. Bæði lið voru að leggja allt í þetta og henda sér á alla bolta.

Það lifnaði aðeins yfir sóknarleiknum undir lok leikhlutans og aftur var Keflavík skrefinu á undan og var að setja sín skot á meðan Valsmenn voru í smá brasi. Keflavík leiddi með níu stigum fyrir fjórða leikhluta 63-54.

Remy Martin opnaði fjórða leikhluta á tveim sturluðum þristum og gerði verkefni Vals sem var erfitt fyrir þeim mun erfiðara. Skýr skilaboð frá Keflavík í upphafi fjórða leikhluta að þeir ætluðu sér í leik fimm.

Valsmenn hótuðu endurkomu en Keflavík drap þá von fljótt og sigldu í gegnum fjórða leikhlutann nokkuð þægilega. Remy Martin setti þrist þegar rétt um þrjátíu sekúndur voru eftir sem fór alveg með alla von Vals og Keflavík náði að tryggja sér oddaleik með því að sigra Val með sjö stig mun 88-81.

Atvik leiksins 

Remy Martin í upphafi fjórða leikhluta fannst mér svolítið drepa trú Vals á verkefninu í kvöld. Tveir sturlaðir þristar frá honum og það kveikti í húsinu fyrir Keflavík. Ef það var einhver von eftir þá saltaði Remy Martin líka þá von með þrist alveg í blálokin.

Stjörnur og skúrkar

Remy Martin var frábær í kvöld. Hann var að setja stórar körfur og endaði stigahæstur í kvöld með 27 stig. Mirza Bulic var líka öflugur og var með tvöfalda tvennu 18 stig og 16 fráköst. Frábær liðssigur hjá Keflavík.

Hjá Val var Kristófer Acox svolítið að reyna draga vagninn og endaði hann með 24 stig og tók auk þess 10 fráköst.

Dómararnir

Sigmundur Már, Gunnlaugur Briem og Davíð Kristján sáu um flautuna í kvöld. Krefjandi verkefni sem þeir fengu í hendurnar og skiptar skoðanir með hvernig það tókst til hjá þeim en mér persónulega fannst þeir komast þokkalega frá þessu.

Stemingin og umgjörð

Það var hörku stemning og gríðarlega vel mætt í Blue höllinni í kvöld. Keflavík er mikill körfuboltabær og það var allt upp á rúmlega tíu. Úrslitakeppnin er skemmtilegasti tími ársins, það er staðfest!

Viðtöl

Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari KeflavíkurPaweł/Vísir

„Frábær frammistaða en hún gefur okkur ekki neitt í næsta leik“

„Virkilega miklir keppnismenn og við vissum eftir sárt tap í síðasta leik hvað við þurftum að gera enn betur og vera klárir í bátana“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur í samtali við Andra Már Eggertsson eftir sigurinn í kvöld. 

„Þetta var frábær frammistaða en hún gefur okkur ekki neitt í næsta leik en við þurfum samt að byggja á henni og vera meðvitaðir um hvað það var sem skilaði því“ 

Það var margt sem var að smella hjá Keflavík í kvöld og margir þættir sem spiluðu inn í frábæra frammistöðu heimamanna í kvöld.

„Framlagið frá bekknum var bara gríðarlega gott og það er það sem þarf í þetta. Við getum ekki verið að hengja okkur á eitthvað einstaklingsframtak. Við verðum að spila boltanum, vera saman og gera hlutina vel og vera saman í flæði“

„Að sama skapi þá sækja á það sem er að virka og við gerðum það bara vel í kvöld“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.

Finnur Freyr Stefánsson ræðir við sitt lið.Paweł/Vísir

 „Þeir voru töluvert betri og gerðu bara vel“

„Mér fannst þeir bara beittari og aggresívari“ sagði Finnur Freyr Stefánsson í samtali við Andra Már Eggertsson eftir tapið í kvöld.

„Það var meiri kraftur í þeim og þeir settu tóninn strax með sóknarfráköstum í fyrsta leikhluta og héldu því taki eiginlega mest megnist allan leikinn“

Valsmenn voru í brasi með að komast í takt og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. 

„Við fáum strax á okkur eins og í fyrsta leiknum í seríunni þá fáum við alveg fullt af villum og við erum strax komnir með snemma í fyrsta leikhluta menn í villuvandræði“

„Kristófer Acox fær þrjár villur og það svolítið litar frammistöðuna okkar í fyrri hálfleik að hann sitji lengi í fyrri hálfleik en þeir voru töluvert betri og gerðu bara vel“ 

Kristófer Acox átti sinn stigahæsta leik á tímabilinu þrátt fyrir tapið í kvöld en Finnur Freyr sagði þó engar áherslubreytingar hafa átt sér stað sóknarlega með hann. 

„Nei nei, þeir voru kannski meira aggresívari á bakverðina núna og þá opnaðist fyrir hann og svo fengum við hann í hraðaupphlaupum og eitthvað slíkt“

„Við vissum alveg að það kæmi að því að það myndi eitthvað opnast fyrir hann en við hefðum viljað hafa hina með líka“ sagði Finnur Freyr Stefánsson.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira