Leik lokið: Keflavík-Valur 88-81 | Oddaleikur um helgina Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. apríl 2026 21:25 Remy Martin var frábær í sigri Keflavíkur í kvöld. Vísir/Paweł Keflvíkingar tryggðu sér oddaleik í baráttunni um sæti í undanúrslitum eftir sjö stiga sigur á Val í kvöld, 88-81, í fjórða leik liðanna í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta. Valsmenn voru búnir að vinna tvo leiki í röð í einvíginu, þar af ótrúlegan sigur á lokaskoti leiksins í síðasta leik. Nú hafa bæði lið unnið á heimavelli og bæði lið unnið á útivelli en úrslitin ráðast um helgina á Hlíðarenda. Keflvíkingar náðu að svara vel fyrir afar svekkjandi tap í leiknum á undan með Remy Martin í fararbroddi en hann skoraði 27 stig í kvöld. Keflavík var 28-22 yfir eftir fyrsta leikhlutann og Valsmenn náðu aldrei að vinna þann mun upp. Leikurinn fór kröftuglega af stað fyrir heimamenn sem byrjuðu strax að safna stigum á töfluna. Það var mikill andi í húsinu og það var alveg ljóst frá uppkasti að þetta ætti eftir að gefa Keflvíkingum mikið fyrir baráttuna sem var framundan. Keflavík var að setja góð skot á meðan sömu skotin voru ekki endilega að falla fyrir Valsmenn fyrst um sinn. Heimamenn enduðu fyrsta leikhluta með sex stiga forystu 28-22. Annar leikhluti var ekki alveg jafn fjörugur og sá fyrsti en baráttan var sú sama ef ekki meiri. Það komst smá hiti í leikana sem gerði þetta bara enn skemmtilegra fyrir vikið. Valsmenn náðu að jafna leikinn eftir rúmlega miðbik leikhlutans en Keflavík tók þá leikhlé og náði góðum tökum á leiknum aftur sem þeir héldu út leikhlutann og fóru með átta stiga forskot inn í hálfleikinn 47-39. Mikil barátta einkenndi þriðja leikhlutann og sóknarleikurinn varð svolítið undir í mikilli baráttu úti á velli. Bæði lið voru að leggja allt í þetta og henda sér á alla bolta. Það lifnaði aðeins yfir sóknarleiknum undir lok leikhlutans og aftur var Keflavík skrefinu á undan og var að setja sín skot á meðan Valsmenn voru í smá brasi. Keflavík leiddi með níu stigum fyrir fjórða leikhluta 63-54. Remy Martin opnaði fjórða leikhluta á tveim sturluðum þristum og gerði verkefni Vals sem var erfitt fyrir þeim mun erfiðara. Skýr skilaboð frá Keflavík í upphafi fjórða leikhluta að þeir ætluðu sér í leik fimm. Valsmenn hótuðu endurkomu en Keflavík drap þá von fljótt og sigldu í gegnum fjórða leikhlutann nokkuð þægilega. Remy Martin setti þrist þegar rétt um þrjátíu sekúndur voru eftir sem fór alveg með alla von Vals og Keflavík náði að tryggja sér oddaleik með því að sigra Val með sjö stig mun 88-81. Atvik leiksins Remy Martin í upphafi fjórða leikhluta fannst mér svolítið drepa trú Vals á verkefninu í kvöld. Tveir sturlaðir þristar frá honum og það kveikti í húsinu fyrir Keflavík. Ef það var einhver von eftir þá saltaði Remy Martin líka þá von með þrist alveg í blálokin. Stjörnur og skúrkarRemy Martin var frábær í kvöld. Hann var að setja stórar körfur og endaði stigahæstur í kvöld með 27 stig. Mirza Bulic var líka öflugur og var með tvöfalda tvennu 18 stig og 16 fráköst. Frábær liðssigur hjá Keflavík.Hjá Val var Kristófer Acox svolítið að reyna draga vagninn og endaði hann með 24 stig og tók auk þess 10 fráköst.DómararnirSigmundur Már, Gunnlaugur Briem og Davíð Kristján sáu um flautuna í kvöld. Krefjandi verkefni sem þeir fengu í hendurnar og skiptar skoðanir með hvernig það tókst til hjá þeim en mér persónulega fannst þeir komast þokkalega frá þessu.Stemingin og umgjörðÞað var hörku stemning og gríðarlega vel mætt í Blue höllinni í kvöld. Keflavík er mikill körfuboltabær og það var allt upp á rúmlega tíu. Úrslitakeppnin er skemmtilegasti tími ársins, það er staðfest! Valur Bónus-deild karla Keflavík ÍF