Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Birgir Olgeirsson skrifar 7. apríl 2026 15:43 Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði. Ívar Fannar Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segir ekkert óvænt við að óánægja með ríkisstjórnina mælist nú í fyrsta sinn meiri en ánægja frá því hún var mynduð. Hann segir slíka þróun hafa einkennt flestar ríkisstjórnir frá hruni, þó núverandi stjórn hafi að hans mati haldið velli betur en margar aðrar á fyrsta einu og hálfa ári sínu. „
Það kemur ekkert á óvart að núna skuli í fyrsta skipti mælast meiri óánægja en ánægja með ríkisstjórnina,“ segir Ólafur í samtali við Vísi. „Allar ríkisstjórnir frá hruni hafa tapað miklu fylgi á fyrstu einu eða tveimur árum kjörtímabilsins. Það má búast við því að fylgi minnki og að óánægjan verði meiri en ánægjan.“ Þetta segir Ólafur í kjölfar nýrrar ársfjórðungskönnunar Maskínu þar sem 39 prósent segjast óánægð með ríkisstjórnina en 36 prósent ánægð. Um er að ræða fyrsta skiptið frá því stjórnin var mynduð eftir kosningarnar í nóvember 2024 sem óánægjan mælist meiri en ánægjan. Standi sig vel miðað við söguna Að mati Ólafs er þó ekki rétt að lesa niðurstöðuna sem merki um hrun hjá ríkisstjórninni. Hann bendir á að þótt stuðningur við stjórnina hafi minnkað frá því hún tók við hafi hún samt staðið af sér fyrsta hluta kjörtímabilsins betur en margar fyrri stjórnir. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Ólafur segir að væntingar hafi verið bundnar til ríkisstjórnar Kristrúnar að tekið yrði á efnahagsmálum, sem hafi ekki hafi gengið eftir.Vilhelm „Þegar á heildina er litið er þetta bara eitt merki um heldur dvínandi stuðning við ríkisstjórnina,“ segir hann. „En miðað við aðrar ríkisstjórnir hefur hún samt haldið fylginu óvenjulega vel þetta fyrsta eina og hálfa ár.“ Komi á óvart að fylgið hafi ekki minnkað meira Hann segir skýringanna fyrst og fremst að leita í efnahagsmálunum. Ríkisstjórnin hafi verið kjörin með skýr loforð um að ná verðbólgu og vöxtum niður, en árangurinn þar hafi ekki orðið jafn skjótur og margir hafi vænst. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm „Efnahagsmálin voru helsta kosningamálið síðustu kosninga og stjórnin var kosin út á loforð sín í þeim málum,“ segir Ólafur. „Þá kemur kannski á óvart að fylgi ríkisstjórnarinnar skuli ekki hafa minnkað meira en það hefur gert.“ „Hafa tilhneigingu til að sýna almenna óánægju“ Að hans mati segir það líka sína sögu um stöðu stjórnarandstöðunnar. Í sömu könnun mælist óánægja með hana enn meiri en með ríkisstjórnina. „Það segir kannski eitthvað um ánægju fólks með stjórnarandstöðuna,“ segir Ólafur. „Þessar mælingar á ánægju og óánægju, bæði gagnvart borgarstjórn og ríkisstjórn, hafa tilhneigingu til að sýna almenna óánægju með bæði meirihluta og minnihluta, með alla flokka, hvað sem það nú þýðir.“ Ólafur segir að víða hafi ríkisstjórnir í hinum vestræna heimi tapað fylgi hratt og kostnaðurinn við að sitja í ríkisstjórn sé orðin hár. Vilhelm Ólafur segir þessa þróun ekki einskorðast við Ísland. Víða á Vesturlöndum hafi óánægja með stjórnvöld aukist á undanförnum árum og sífellt dýrara orðið fyrir flokka að sitja í ríkisstjórn. „Það hefur alltaf verið talað um stjórnarþreytu og kostnaðinn við ríkisstjórnarþátttöku, en þessi tilhneiging hefur verið að styrkjast,“ segir hann. „Við höfum séð ríkisstjórnir víða tapa fylgi hratt og jafnvel bíða afhroð í kosningum.“ Gerst fyrir flestar stjórnir Hann bendir á að sama mynstur hafi sést hér á landi hjá fyrri ríkisstjórnum eftir hrun. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi til að mynda verið á svipaðri niðurleið þar til heimsfaraldurinn breytti pólitísku landslaginu með afgerandi hætti. Katrín Jakobsdóttir var forsætisráðherra frá árinu 2017 til ársins 2024. vísir/vilhelm „Þá breyttist öll pólitísk umræða,“ segir Ólafur. „Hugmyndafræðilegur ágreiningur skipti minna máli þegar menn voru að glíma við sameiginlega ógn. Á tveimur til þremur mánuðum í byrjun Covid rauk fylgi stjórnarflokkanna upp og það dugði síðan til sigurs í kosningunum 2021.“ Engin gögn styðji að ESB valdi óánægju Spurður hvort ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið geti hafa haft áhrif á ánægjuna með stjórnina segir Ólafur ekkert benda skýrt til þess. Þingsályktunartillaga um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið liggur fyrir Alþingi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leiðir það mál fyrir hönd ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.Vísir „Við höfum engin gögn sem staðfesta þá túlkun,“ segir hann. „Nýjasta könnunin um afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sýnir 52 prósent með áframhaldandi viðræðum og 48 prósent á móti. Það er mjög erfitt að sjá að þær vangaveltur einar og sér hafi stuðlað að aukinni óánægju, og fylgi stjórnarflokkanna hefur ekki minnkað vegna þessa. Menn geta velt því fyrir sér, en það eru engin gögn sem styðja þá túlkun.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Mest lesið „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Veður Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira