Upp­gjörið: Fram - FH 27-33 | FH sendi meistarana í sumar­frí

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Garðar Ingi Sindrason fer í gegn.
Garðar Ingi Sindrason fer í gegn. Vísir/Hulda Margrét

Íslandsmeistarar Fram eru komnir í snemmbúið sumarfrí eftir sex marka tap gegn FH í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta í kvöld, 27-33.

FH-ingar voru með yfirhöndina stærstan hluta leiksins og voru komnir þremur mörkum yfir strax í upphafi. Framarar hleyptu gestunum þó ekki of langt fram úr sér og jöfnuðu metin í 4-4 stuttu síðar.

Gestirnir í FH voru þó skrefinu framar í fyrri hálfleik og náðu mest fimm marka forskoti í stöðunni 7-12 og aftur í 8-13. Einar Jónsson, þjálfari Fram, neyddist til að taka tvö leikhlé í fyrri hálfleik.

Staðan batnaði örlítið fyrir Framara eftir seinna leikhlé liðsins og heimamenn minnkuðu muninn niður í þrjú mörk. FH-ingar áttu þó lokaorðið í fyrri hálfleik og Garðar Ingi Sindrason kom liðinu í 11-15 með marki af vítalínunni stuttu fyrir hlé.

Munurinn því fjögur mörk þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Heimamenn í Fram komu sterkir inn í seinni hálfleikinn og hleyptu gestunum ekki of langt frá sér.

Hægt og bítandi saxaði liðið á forskot FH-inga og náði í nokkur skipti að minnka muninn niður í eitt mark.

Gamla góða herslumuninn vantaði þó upp á til að Framarar næðu að jafna metin eða taka forystuna og FH-ingar voru áfram með yfirhöndina.

Það virtist taka mikla orku úr heimamönnum að eltast við forskot FH-inga og gestirnir sigur fram úr á ný.

Gestirnir náðu aftur fimm marka forskoti þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka og þar með var björninn unninn.

FH-ingar unnu að lokum nokkuð sanngjarnan sex marka sigur, 37-33, og eru á leið í undanúrslit þar sem liðið mætir annað hvort Haukum eða Aftureldingu.

Íslandsmeistarar Fram eru hins vegar komnir í sumarfrí.

Atvik leiksins

Eftir aðeins tæplega fimm mínútna leik ætlaði allt að sjóða upp úr hér í Lambhagahöllinni. Kristófer Máni ætlaði inn úr hægra horninu, en Ívar Logi tók á móti honum og braut af sér. Vítakast dæmt.

Kristófer hafði hins vegar engan húmor fyrir þessu broti Ívars og lét eins og óður maður er þeir lágu saman í gólfinu. Leikmenn beggja liða hópuðust að þeim félögum og reyndu að róa mannskapinn, en að lokum var Kristófer sendur af velli með tveggja mínútna brottvísun. Ekki oft sem maður fiskar víti og er rekinn út af á sama tíma.

Stjörnur og skúrkar

Þeir Ómar Darri Sigurgeirsson og Garðar Ingi Sindrason drógu vagninn sóknarlega fyrir FH-inga og skoruðu átta mörk hvor. Í liði Fram var Viktor Sigurðsson atkvæðamestur með sex mörk.

Bæði lið hefðu líklega viljað fá betri markvörslu í kvöld, en Daníel Freyr Andrésson átti þó ágætis innkomu í mark FH-inga í fyrri hálfleik.

Dómararnir

Þeir Árni Snær Magnússon og Þorvar Bjarmi Harðarson fengu heldur snúið verkefni í kvöld. Á köflum var mikill hiti í leikmönnum, þjálfurum og áhorfendum og þeir félagar þurftu nokkrum sinnum að skerast í leikinn.

Stemning og umgjörð

Framarar buðu upp á stemningu og umgjörð í ansi háum gæðaflokki í kvöld. Vel staðið að öllu í kringum leikinn og stemningin í stúkunni skemmdi ekki fyrir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira