Vill ekki koma heim með „kúkinn á bakinu“ eftir dvöl hjá Barcelona Aron Guðmundsson skrifar 28. mars 2026 11:03 Janus gengur endanlega í raðir Barcelona í sumar Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Janus Daði Smárason, gengur í raðir spænska stórveldisins Barcelona í sumar. Hann er stoltur á þessum tímamótum og mun sem leikmaður Börsunga eltast við að ná sínu helsta markmiði í boltanum.
Janus skrifar undir þriggja ára samning við Barcelona og gengur í raðir félagsins frá Pick Szeged í sumar. Barcelona eitt stærsta, ef ekki stærsta íþróttafélag í heimi. Goðsagnakennt og heiðurinn varla meiri. „Ég er stoltur, spenntur. Mér finnst ég vera á toppnum á mínum ferli til þessa bæði líkamlega og andlega. Finnst það ákveðin viðurkenning að vera sóttur þangað,“ segir Janus Daði í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Fyrst heyrir maður eitthvað og hugsar maður með sér: „Vá Barcelona, geðveikt.“ Ef það er möguleiki þá skoðar maður hann. Eftir að hafa velt þessu fyrir mér fram og til baka finnst mér þetta of stórt tækifæri til að hoppa ekki á það.“ Eitthvað er pilturinn að gera rétt fyrst Barcelona sótti hann. „Bendir á að maður er að gera eitthvað rétt. Fólk virðist kunna að meta það sem maður stendur fyrir. Á sama tíma gefur það manni aukakraft að halda áfram. Þig langar í meira. Það spilar saman með því sem hefur verið að gerast í landsliðinu. Við finnum það þar að við erum að nálgast eitthvað stórt. Ég held þetta passi bara vel fyrir bæði.“ Janus Daði hefur verið lykilmaður í liði Pick Szeged - Hann ætlar sér að verða einn af burðarstólpunum í liði BarcelonaEPA-EFE/Sandor Ujvari Getur komið út sem kjáni af og til Eitt verst geymda leyndarmál handboltans ekki lengur leyndarmál. Langt er síðan greint var frá því að Janus væri að ganga í raðir Börsunga en hann hefur þurft að halda spilunum þétt að sér, láta eins og ekkert væri í gangi. „Þetta er heimur sem við þekkjum. Svona er þetta bara og maður er ekkert mikið að velta sér upp úr því. Á sama tíma er kannski eitthvað búið að gerast og handboltaheimurinn er nú ekki stór. Þá getur maður líka komið út sem smá kjáni af og til. Svona er þetta.“ Janus Daði í leik með íslenska landsliðinuvísir/Vilhelm Einhver tími hefur liðið síðan allt var klappað og klárt varðandi félagsskiptin. „Það er alveg smá síðan. Ég ætla ekki að tjá mig meira um það.“ Stóra gulrótin Hjá Barcelona hittir Janus Daði fyrir liðsfélaga sinn úr landsliðinu Viktor Gísla Hallgrímsson. Janus hefur komið víða við á sínum ferli, spilað í sterkustu deildum í heimi og verið sigursæll en er enn á eftir stóra markmiði sínu. Að vinna Meistaradeildina. „Það er á endanum gulrótin sem maður er að reyna vinna að. Annars held ég að mig langi að koma þangað, halda áfram að bæta mig. Ef ég get skipt máli þarna, tekið til mín eins og ég get. Þá er ég líka bara stoltur hvernig þetta er að þróast hjá mér. Á sama tíma væri líka ömurlegt fara þangað, vera varaskeifa og koma heim með kúkinn á bakinu. Þá væri ég ekki stoltur. Þú ert að fara í toppfélag, vilt vera með, vilt vinna og þú vilt skipta máli. Ætli það sé ekki númer eitt tvö og þrjú.“
Spænski handboltinn Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira