Hamar/Þór - Kefla­vík 88-85 | Kefla­vík fékk Hamars­högg í Þor­láks­höfn

Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar
Jadakiss Guinn og stöllur í Hamri/Þór fara í umspil um að halda sér uppi en sendu Ármann um leið niður um deild.
Jadakiss Guinn og stöllur í Hamri/Þór fara í umspil um að halda sér uppi en sendu Ármann um leið niður um deild. vísir/Anton

Hamar/Þór vann Keflavík í fjörugum leik í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Hamar/Þór hefur verið í botnbaráttu bróðurpartinn af tímabilinu á meðan Keflvíkingar hafa verið staðsettir fyrir ofan miðja deild. Lokatölur í dag 88-85 Hamar/Þór í vil.

Það vakti athygli í upphituninni að Sara Rún Hinriksdóttir og Sofie Tryggedsson Preetzmann voru í borgaralegum klæðnaði á hliðarlínunni. Sara Rún meiddist í fyrri landsleiknum um daginn og Hörður Axel vill gefa henni tíma til að jafna sig. Sofie meiddist einnig lítillega í vikunni og þurftu Keflvíkingar að ráða ráðum sínum og stoppa upp í þessi stóru göt.

Fyrsti leikhluti fór vel af stað. Heimakonur í Hamar/Þór voru vel stilltar og spiluðu agaðan sóknarleik. Það sást strax að Keflavík saknaði Söru Rúnar og Sofie í sóknarleiknum. Það vantaði einhvern til að stíga upp og fékk Angelina Turmel það hlutverk. Hún var í stöðugum slagsmálum við Jovönu Markovic undir körfunni strax í upphafi. Hamar/Þór náði að loka á Keishana Washington í fyrsta leikhluta. Staðan í lok fjórðungsins var 22-14 Hamar/Þór í vil.

Í öðrum leikhluta náðu Keflvíkingar að þjappa sig saman og saxa á forskot heimakvenna. Angelina Turmel fékk nóg að borða í sóknarleiknum og þakkaði traustið. Hún dreif Keflvíkinga áfram og Keishana Washingon náði að slíta sig lausa og taka meiri pláss í sókninni. Hjá Hamar/Þór voru Ana Clara Paz og Mariana Duran gríðarlega seigar og Jovana Markovic hnoðaðist undir körfunni. Jadakiss Nashi Guinn bretti upp ermarnar og sótti hart að körfunni.

Þær héldu gestunum í armslengd, stjórnuðu hraðanum og fóru með tíu stiga forskot inn í hálfleik, 36-26.

Leikurinn opnaðist meira í þriðja leikhluta þar sem bæði lið fóru að skora af meiri krafti. Keflavík minnkaði muninn með auknum hraða og árásargirni, en Hamar/Þór svöruðu fyrir sig í hvert skipti og héldu forskotinu. Anna Ingunn Svansdóttir steig upp hjá Keflvíkingum og spennan var mikil.

Fyrir lokaleikhlutann voru heimakonur enn yfir, 61-53, og virtust hafa góð tök á stöðunni.

Í fjórða leikhluta snerist leikurinn hins vegar við. Keflavík herti varnarleikinn og fór að hitta betur úr skotum á sama tíma og Hamar/Þór áttu erfiðara með að loka leiknum. Munurinn minnkaði jafnt og þétt og spennan jókst með hverri sókn.

Á lokamínútunum nýtti Keflavík reynslu sína betur. Þær kláruðu sóknirnar sínar, fengu mikilvæg stig og náðu að snúa mómentinu sér í hag. Þær söxuðu á muninn og lokamínútur leiksins voru æsispennandi.

Heimakonur þjöppuðu sér saman og héldu þetta út. Lokatölur 88-85 Hamar/Þór í vil. Þær geta þakkað liðsheildinni sigurinn. Þær létu boltann rúllu vel og bitu fast frá sér þegar Keflvíkingar nálguðust þær í stiga skorinu. Hamar/Þór leiddi allan leikinn og hafa nú unnið tvo leiki í röð. Þær felldu með sigrinum Ármann en fara í umspil með þremur liðum úr 1. deild, um sæti í efstu deild á næstu leiktíð.

Atvik leiksins

Atvikin í þessum leik voru mörg. Það var hreinn unaður að horfa á baráttuna milli þeirra Jovönu Markovic og Angelinu Turmel. Þessar stóru og sterku stelpur buðu upp á tveggja turna tal. Það var magnað að sjá þær henda sér í alla bolta og hnoðast inn í teignum.

Stjörnur og skúrkar

Stjörnur Hamar/Þórs voru þrjár. Fyrst ber að nefna Jovana Markovic sem skoraði 25 stig í leiknum og reif niður sjö fráköst. Næst ber að nefna Jadakiss Nashi Guinn sem skoraði 22 stig og var með 6 fráköst og 6 stoðsendingar. Síðust en alls ekki síst var svo Ana Clara Paz sem skoraði 21 stig, var með átta fráköst og fimm stoðsendingar.

Hjá Keflavík eiga Keishana Washington og Angela Turmel mikið hrós skilið. Turmel fer heim marin og meidd eftir slagsmálin.

Dómararnir

Dómarasveit dagsins skipuðu Jóhannes Páll Friðriksson, Eggert Þór Aðalsteinsson og Guðmundur Ragnar Björnsson. Tríóið stóð sig fínt en virkuðu stressaðir á köflum. Keflvíkingar voru pirraðir yfir ákvörðunartökum þeirra og skil ég þá bara vel.

Stemmning og umgjörð

Hamar/Þór hefur verið að leika til skiptis í Hveragerði og í Þorlákshöfn. Í þetta skiptið var leikið í Höfninni og hamingjan var allsráðandi. Lúðrasveit Þorlákshafnar hélt teiknimynda tónleika á sama tíma hinum meginn í bænum. Því var keppt um athygli bæjarbúa.

Í svona litlu bæjarfélagi er lúðrasveitin bæjarprýði. Hefði ekki verið skynsamara að hafa einn viðburð í einu?

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira