Upp­gjör: Stjarnan - ÍA 113-102 | Meistararnir mörðu Skaga­menn

Árni Jóhannsson skrifar
Seth LeDay og Styrmir Jónasson í hörkubaráttu.
Seth LeDay og Styrmir Jónasson í hörkubaráttu. Vísir / Anton Brink

Stjarnan náði í sigur á föllnum Skagamönnum í næst síðustu umferð Bónus deildar karla. Íslandsmeistararnir þurftu allar 40 mínúturnar til að klára leikinn sem endaði 113-102.

Heimamenn í Stjörnunni byrjuðu mikið betur og eftir að hafa skipst á sitthvorri körfunni keyrði Stjarnan upp í 10-2 og fékk maður á tilfinninguna að þetta gæti orðið ljótt. Annað kom á daginn því Skagamenn, sem gefast aldrei upp, keyrðu þá bara upp sinn anda og söxuðu niður forskotið og komust yfir þegar um fimm mínútur voru liðnar af leknum og staðan 19-20. Ekki var mikið um varnir en gott tempó og tilþrif einkenndu leikinn. Stjarnan steig þá á bensín gjöfina og skoruðu 15 stig gegn átta og leiddu 34-28 eftir fyrsta leikhluta.

Stjarnan hélt áfram að keyra á Skagamenn og voru komnir með 15 stiga forskot þegar 12 mínútur voru liðnar af leiknum, 43-28. Aftur náði ÍA upp stuði í sinn leik og Stjarnan slakaði á klónni. Næstu sex mínútur unnu gestirnir 10-21 og minnkuðu muninn niður í fjögur stig. Þá datt leikurinn í jafnvægi og liðin skiptust á körfum en Stjarnan endaði örlítið betur og var með sjö stigum 64-57. 

Ef við grípum niður í textalýsinguna þá er fyrri hálfleik best lýst svona: „Varnarleikur hefur varla verið spilaður. Nokkur varin skot og stolnir boltar en almennt ekki.“

Hilmar Smári Henningsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik en fór á sprett í upphafi seinni hálfleiksins. Liðsfélagar hans fylgdu með og staðan var orðin 74-60. Heimamenn náðu að halda ÍA í skefjum en þegar staðan var 81-65 þá skutust gestirnir á 10-0 sprett og munurinn var minnkaður í sex stig 81-75. Stjörnumönnum var þá nóg boðið, aftur og ekki í síðasta skiptið í leiknum, og vann lokin á þriðja leikhluta 9-1 og leiddu með 14 stigum fyrir lokafjórðunginn, 90-76.

Skagamenn byrjaði fjórða leikhlutann mikið betur og keyrði eins nálægt heimamönnum og þeir komust. Í stöðunni 94-89 tók Baldur Þór leikhlé og gekk gjörsamlega af göflunum. Lét sína menn vita að þetta væri ekki í boði og að þeir þyrftu að stíga upp í sínum leik. Það gekk upp í smá stund. ÍA hélt í við Stjörnuna og það var sex stiga munur þegar 1:23 eftir af leiknum. Þá fór allt í skrúfuna fyrir Skagann. 

Heimamenn vörðust og skoruðu og Darryl Morsell fékk tæknivillu fyrir munnsöfnuð. Þá var munurinn orðinn níu stig og aftur fékk Darryl tæknivillu og honum vísað út. Þar með var leik lokið og Stjarnan sigldi níu stiga sigri heim 113-102.

Atvik leiksins

Leikhléið sem var tekið þegar 1:23 voru eftir af leiknum. Grípum aftur niður í textalýsinguna: „Baldur er alveg trylltur. Vill greinilega að sínir menn vakni. Fer með leiksigur í að sýna þeim hvernig þeir eru inn á vellinum. Frábært bíó.“

Við þetta juku menn ákafann en tæknivillurnar á Darryl Morsell hjálpuðu ekki Skagamönnum í lok leiks.

Stjörnur og skúrkar

Hilmar Smári Henningsson var frábær í seinni hálfleik og lauk leik með 28 stig. Seth LeDay skilaði 25 stigum og 11 fráköstum og Bjarni Guðmann kom með 18 stig og átta fráköst af bekknum.

Hjá ÍA voru þeirra helstu leikmenn með góðan leik. Darryl Morsell skoraði 27 stig og hrifsaði til sín 17 fráköst. Gojko Zudzum skoraði þá 28 stig.

Umgjörð og stemmning

Það hefur oft verið betur mætt í ÞG-verk höllina en þau sem mættu gerðu vel í að styðja sína menn.

Dómarar leiksins

Kristinn Óskarsson, Birgir Örn Hjörvarsson og Einar Valur Gunnarsson gerðu vel úr sínu. Það var gott flæði í leiknum og leikmenn fengu góðar útskýringar á þeim dómum sem þurfti að dæma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira