Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 18. mars 2026 13:11 Frá blaðamannafundi Säkerhetspolisen eða Säpo í Stokkhólmi í morgun. Forsvarsmenn stofnunarinnar, þau Fredrik Hallstrom og Charlotte von Essen segja ógnina frá Rússlandi hafa aukist. EPA/CLAUDIO BRESCIANI Forsvarsmenn sænsku öryggislögreglunnar Säpo vara við því að ógn Rússa gagnvart Svíþjóð gæti aukist. Rússar eru sagðir beita fjölþátta ógnum í meiri mæli en áður en hundruð grunsamlegra atvika hafa verið til rannsóknar í Svíþjóð sem grunur leikur á að rekja megi til Rússlands, án þess þó að tekist hafi að sanna tengingu þar á milli.
Þá hefur öryggisástandið heilt yfir versnað vegna átaka í Mið-Austurlöndum eða stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Svíþjóð í dag þar sem forsvarsmenn Säpo kynntu nýjustu árlegu stöðuskýrslu þeirra um ógnir sem Svíar standa frammi fyrir. Í skýrslu Säpo segir, samkvæmt SVT, að öryggislögreglan telji Rússa ekki vilja taka mikla áhættu og þess vegna beiti þeir frekar fjölþátta ógnum, tölvuárásum og leynilegum áróðursherferðum. Vitað sé til þess að Rússar hafi fengið fólk til að kortleggja og skrá möguleg skotmörk í Svíþjóð en engar harðar sannanir hafi fundist fyrir árásum á mikilvæga innviði. Hins vegar sé vitað til þess að Rússar hafi reynt skaðlegar tölvuárásir í Svíþjóð. Þá segja forsvarsmenn Säpo að nauðsynlegt sé að auka áfallaþol í sænsku samfélagi. Vara enn við „stökum úlfum“ Lögreglan varar einnig við áframhaldandi hættu á árásum stakra einstaklinga og þá sérstaklega meðal ungs fólks. Þessar árásir eru gjarnan kallaðar „Lone wolf“ árásir á ensku og er þar átt við að einstaklingar eða mjög smáir hópar fólks sem hafa öfgavæðst en tilheyrir ekki neinum samtökum eða hópum með beinum hætti taki þá ákvörðun að fremja voðaverk. Lögreglan vísar til árásarinnar á Bondi-strönd í Ástralíu og segir einnig hættu á því að klerkastjórnin í Íran gæti byrjað að ýta undir hryðjuverkastarfsemi vegna árásanna á Íran.
Svíþjóð Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira