Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Freyja Þórisdóttir skrifar 14. mars 2026 10:17 Þórdís Kolbrún leggur áherslu á að umræða vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB verði málefnaleg. Vísir/Viktor Kjósendur verða að beita eigin dómgreind og kynna sér sjónarmið. Á sama tíma er það skylda stjórnvalda að vanda undirbúning í hverju einasta skrefi. Þessi ákvörðun sé stærri en flokkspólitískir hagsmunir.
Þetta og fleira kemur fram í grein Þórdísar Kolbrúnar sem birtist í Morgunblaðinu í dag, laugardaginn 14. mars. Þar segir hún einnig að hvort þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að Evrópusambandinu sé áframhald á eldra ferli eða nýtt ferli á sama grunni sé að hennar mati tæknilegt atriði. „Mikilvægara er að vitsmunaleg umræða eigi sér stað um stóru drættina í þeirri vegferð sem ríkisstjórnin ætlar að bjóða upp á og gera sér grein fyrir því að ákvörðun um að sækja um aðild, á grundvelli milliliðalauss umboðs frá þjóðinni, væri stærsta ákvörðun sem tekin hefur verið í utanríkismálum að minnsta kosti frá því við gerðumst aðilar að EES-samtarfinu,“ segir Þórdís. Þá segir hún að ákvörðun sem þessi sé stærri en núverandi ríkisstjórn og stærri en flokkspólitískir hagsmunir. Hún bendir á að þrátt fyrir að margir telji að ekki eigi að „sundra þjóðinni með því að setja þetta mál á dagskrá“ þá verði að gæta þess að umræðan verði ekki of hatrömm. Þá einna helst með því að líta í eigin barm og stuðla ekki sjálf að því vandamáli. Óraunsætt að forðast spurningar Þórdís telur einnig að það væri óraunsætt miðað við þróun heimsmála að íslenskt ríki geti forðast spurningar um stöðu þess í heiminum. „Hvernig sem við teljum að hagsmunum okkar, lífskjörum, fullveldi okkar og sjálfstæði til lengri tíma sé best borgið. Þar er spurningin um aðild að Evrópusambandinu undir – hvernig sem henni er svo svarað,“ segir Þórdís í greininni. Hún segir jafnframt að það þurfi að átta sig á því að ef vel á að vera yrði stjórnkerfi Íslands að miklu leyti undirlagt aðildarumsókn frá þeim tíma sem viðræður hæfust. Þetta yrðu ekki með neinu móti einfaldar og léttar aðildarviðræður þar sem ekkert breyttist hér heima fyrr en kæmi að því að taka afstöðu. Á móti kemur að Þórdís segir stóran hluta lagasafns Íslands samræmast ESB-löggjöf nú þegar og þannig væri það „hálfur sannleikur að láta eins og þetta séu að öllu leyti aðlögunarviðræður.“ Hornsteinn að tilheyra stóru bandalagi Hún heldur áfram á sömu nótum og segir það vera rangt að halda því fram að Ísland væri ekki sjálfstæð þjóð né fullvalda ef það væri með aðild að Evrópusambandinu, hún segir aðildarríki ESB auðvitað vera fullvalda og sjálfstæð ríki. „Sum þeirra, eins og Eystrasaltsríkin, með sína erfiðu sögu, líta á það sem hornstein í fullveldi sínu að tilheyra stóru bandalagi. Þau rök hafa, hingað til, aldrei átt betur við Ísland, sem betur fer,“ segir Þórdís. Það sé hins vegar hárrétt að með aðildinni myndi verða til þörf á breytingum á stjórnarskrá vegna valdaframsals sem hún heimilar ekki. Ef svarið verði nei í fyrirhugaðri kosningu sé málið hins vegar úr sögunni í íslenskri pólitík, að minnsta kosti í fyrirsjáanlegri framtíð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira