Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. mars 2026 10:55 Laufey mun trylla þúsundir Íslendinga um helgina og tónleikagestir og íbúar munu þurfa hafa sitt á hreinu. Íbúar í Kórahverfi í Kópavogi munu þurfa að nýta sér hjáleiðir vegna götulokana í kringum Kórinn í Kópavogi um helgina þar sem fram fara stórtónleikar Laufeyjar. Lokanirnar eru í gildi átta og hálfa klukkustund á laugardag og sunnudag. Þá geta langflestir tónleikagestir ekki mætt á bíl á tónleikana, heldur er þeim gert að mæta í Smáralind. Afkastagetu fyrir 4G og 5G á svæðinu hefur verið aukið. Líkt og fréttastofa hefur greint frá koma yfir fimm hundruð manns að undirbúningi og annarri vinnu vegna risatónleika Laufeyjar. Alls munu um sextán þúsund manns sækja tónleikana sem eru hluti af A Matter of Time tónleikaröð Laufeyjar. Smári Jökull Jónsson fréttamaður kíkti í Kórinn í vikunni og fylgdist með undirbúningi risatónleikanna. Takmarkanir á umferð Ljóst er að á meðan tónleikunum stendur verður ekki hægt að keyra á bíl í og við Kórinn á laugardag og sunnudag. Lokanir taka gildi klukkan 15:30 og eru í gildi til 00:00. Þær ná frá Vatnsendavegi, að Baugakór og Vallakór. Gerir Kópavogsbær ráð fyrir hjáleið í gegnum Kóraveg. Á þessu korti má sjá götulokanir og hjáleið sem gert er ráð fyrir. Í svörum frá Kópavogsbæ segir að íbúar í Vallakór 6B hafi fengið bréf í póstkassa sem heimili þeim akstur í gegnum lokanir til og frá sínum bílakjallara. Þeir séu þeir einu sem hafi lent í því að hús þeirra er innan lokunarsvæðis þar sem ekki er hægt að fara hjáleið. Þannig munu takmarkanir á almennri umferð ekki hafa áhrif á aðgengi að heimilum. „Takmarkanir á almennri umferð eru gerðar, ekki síst í þeim tilgangi að vernda hverfið næst Kórnum og íbúa þess. Eina leiðin til að tryggja aðgengi þeirra og annarra sem þurfa að komast að og frá Kórnum á þessum tímum, er að taka stjórn á umferðinni og takmarka almenna umferð,“ segir í svari bæjarins. Dagskrá samkvæmt Senu: 17:30 – Sætaferðir hefjast frá Smáralind 18:00 – Húsið opnar 20:00 – Elín Hall 20:30 – Hlé 21:00 – LAUFEY 22:45 – Áætlaður endir** Sena tekur fram að dagskrá sé birt með fyrirvara og geti riðlast. Stæði og strætó í Smáralind fyrir gesti Í tilkynningu er bent á að ekki verði hægt að koma á einkabíl að Kórnum. Engin bílastæði verða innan götulokana. Er gestum bent á að taka strætó en skipulagðar ferðir verði frá Smáralind frá 17:30. Þá taka skipuleggjendur fram að stæði við fjölbýlishús í nágrenninu séu einkastæði. Nóg sé af stæðum við Smáralind. Einnig verði akstur leigubíla heimill að sérstakri stoppustöð sem verður í um tvöhundruð metra fjarlægð frá húsinu. Engin stæði séu fyrir gesti hjá Kórnum en bílastæði eru fyrir gesti hjá Smáralind. Á þessu korti frá Senu má sjá hvar strætó mun stoppa fyrir tónleikagesti. Þeir sem ætla sér í leigubíl hvattir til að mæta snemma Á vef Senu Live sem skipuleggur tónleikanna er tónleikagestum bent á að takmarkað magn leigubíla sé á höfuðborgarsvæðinu. Ekki sé mælt með því að treysta um of á slíkar ferðir og þá sérstaklega að tónleikum loknum. Þau sem velja þá leið að taka leigubíl eru hvött til þess að mæta snemma. Þá er bent á að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði við Kórinn og eru eingöngu aðgengileg handhöfum P-merkis sem eiga miða á tónleikana. Aðgengi að stæðunum verða í gegnum Þingmannaleið, niður Heimsenda og þaðan inn á bílastæðið við Kórinn. Er bent á að hér sé um takmarkað magn stæða að ræða og er fólk sem hyggst nýta sér þau hvatt til að mæta tímanlega. Ekki sé hægt að tryggja að stæði verði laus fyrir alla bíla með P-merki. Þá fá þau sem nýta akstursþjónustu fatlaðra aðgang að húsinu á sama hátt og aðrir sem hafa P-merki. Bílar með P-merki fái aðgang að svæðinu til að skutla og sækja að P-merktu svæði. Bent er á að bílar með P-merki fá eingöngu aðgang að svæðinu ef handhafi P-merkis á miða á tónleikana. Sýna þarf tónleikamiða til að fá aðgang. Hafi tónleikamiða tilbúna Þá biður Sena Live tónleikagesti um að hafa tónleikamiða tilbúna til innskönnunar þegar komið er að húsinu. Það flýti fyrir og minnki líkur á töfum. Er bent á að ekki sé nóg að sýna tölvupóst. Sækja þurfi PDF miða með strikamerki og upplýsingum um hólf, bekk og sæti. Tveir inngangar séu fyrir utan Kórinn. Er gestum bent á að nota þann inngang sem tilheyri hólfinu á tónleikamiðanum. Þegar inn sé komið skal finna rétt hólf, en tekið er fram að það verði góðar merkingar á staðnum sem vísa muni veginn. Þá fengust þær upplýsingar frá Sýn að búið sé að auka afkastagetu 4G og 5G senda á svæðinu í kringum Kórinn á meðan tónleikarnir fara fram. Vísir er í eigu Sýnar. Tónlist Kópavogur Tónleikar á Íslandi Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Fleiri fréttir Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sjá meira
Dagskrá samkvæmt Senu: 17:30 – Sætaferðir hefjast frá Smáralind 18:00 – Húsið opnar 20:00 – Elín Hall 20:30 – Hlé 21:00 – LAUFEY 22:45 – Áætlaður endir** Sena tekur fram að dagskrá sé birt með fyrirvara og geti riðlast.
Tónlist Kópavogur Tónleikar á Íslandi Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Fleiri fréttir Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sjá meira